19.06.1985
Neðri deild: 105. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6919 í B-deild Alþingistíðinda. (6251)
119. mál, lögverndun á starfsheiti kennara
Frsm. meiri hl. (Halldór Blöndal):
Herra forseti. Þetta frv. hefur verið rætt nokkuð í menntmn. og er meiri hluti menntmn. sammála og og skilar nál. svohljóðandi:
„Nefnd á vegum menntmrh. hefur unnið að því að kanna með hvaða hætti sé unnt að ná samkomulagi við fulltrúa kennarasamtakanna um hvað felast skuli í frv. um lögverndun á starfsheiti kennara án þess að skólastarfi í landinu sé stefnt í hættu vegna kennaraskorts. Nefndin hefur ekki lokið störfum og því leggur meiri hl. til að frv. verði vísað til ríkisstj.“
Um þetta mál voru mjög ítarlegar umr. hér í Sþ. fyrir ekki löngu og sé ég ekki ástæðu til að endurtaka það sem þá var sagt. Ég vil vekja athygli á að í því frv. sem hér liggur fyrir er einmitt gert ráð fyrir að lögverndun á starfsheiti kennara feli ekki í sér að útilokað sé að aðrir geti stundað kennslu sem er að sjálfsögðu vegna þess að hv. 1. flm. er vel kunnugur úti um land og veit hvaða afleiðingar það gæti haft á þeim stöðum.
Varðandi hitt atriðið, hvort í þessu frv. felist réttindi til handa kennurum, starfsöryggi, þá er svo ekki. Lög um embættisgengi kennara og skólastjóra frá 12. maí 1978 fela í sér ítarleg ákvæði um það hverjum skilyrðum kennarar þurfi að fullnægja til þess að þeir fái skipun. Í 11. gr. þeirra laga er fjallað um grunnskólakennara og þau skilyrði sem þar eru lögð til grundvallar skipun. f 15. gr. eru með sama hætti talin upp þau skilyrði sem gilda skulu varðandi framhaldsskóla.
Þetta frv. fjallar því ekki um efnisatriði í þeim skilningi að frv. hafi þýðingu fyrir kennara í þeirra starfi. Á hinn bóginn liggur það fyrir að hæstv. menntmrh. er að vinna að þessu máli og ég tel að það sé gott fyrir málið, það sé farsælast fyrir alla aðila, bæði kennarasamtökin og aðra, að því starfi verði lokið. Þess vegna leggur meiri hl. nefndarinnar til að frv. verði vísað til ríkisstj.