19.06.1985
Neðri deild: 105. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6922 í B-deild Alþingistíðinda. (6254)

119. mál, lögverndun á starfsheiti kennara

Frsm. meiri hl. (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég áttaði mig ekki alveg á því hver var andinn í ræðu hv. 5. þm. Austurl. þegar hann fjallaði um þetta mál. Ég held nefnilega að það hafi ekki legið ljóst fyrir hvort hann fylgdi þessu máli af einlægni og sönnum hug eða hvort hann var að reyna að nota þetta mál til þess að slá sig til pólitísks riddara og bar fyrir sig lögverndun á starfsheiti kennara því máli sínu til stuðnings.

Ég vil vekja athygli á því að í 3. gr. þessa frv. segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Takmarkað og/eða tímabundið leyfi til kennslustarfa má veita þeim sem eru í starfi þegar lög þessi öðlast gildi en uppfylla ekki skilyrði 1. gr.“

Ég vildi nú gjarnan fá nánari og gleggri skýringu á því hvernig hv. 5. þm. Austurl. hugsar sér að framfylgja þessu ákvæði. Hvað á hann nákvæmlega við þegar hann talar um það annars vegar að leyfið skuli vera takmarkað og hins vegar að það skuli vera tímabundið og hvernig hugsar hv. þm. sér að leyfið skuli vera í senn takmarkað og tímabundið? Það væri fróðlegt að fá um það gleggri upplýsingar.

Hann lét svo um mælt um lögverndun á starfsheiti kennara í þeirri merkingu að slík lagasetning mundi þrengja möguleika þeirra sem ekki eru kennaralærðir til að stunda slík störf úti á landi að engin hætta væri fyrir hendi á að ekki fengist fólk til kennslustarfa úti á landi og bætir við: Sé um einhverja hættu að ræða er hún tilkomin á starfstíma yfirstandandi þings. Ég spyr þá: Er verið með þessu að gefa í skyn að á liðnum árum, á þeim tíma sem hann m. a. var í ríkisstjórn, hafi verið menntaðir kennarar í öllum störfum við skóla úti á landi? Ber að skilja það svo að menn með full kennararéttindi skipi stöður t. d. í framhaldsskólum utan þessa stór-Reykjavíkursvæðis sem við erum á nú? Ber að skilja þetta svo að þeir menn sem ekki hafa tilskilin leyfi og kenna þó við ýmsar menntastofnanir úti á landi hafi rækt sín störf svo illa að ástæða sé til að knýja fast á með það nú að gera þeirra starfsöryggi minna en verið hefur? Það má vel vera að það sé léttvægt í þessum sölum að draga úr starfsöryggi manna sem kannske hafa fengist við kennslu um 20 ára skeið með góðum árangri. En hitt held ég að við skulum líka hafa í huga, að ef löggjafinn og þeir sem þar eru með yfirlýsingum eða tillöguflutningi að draga úr starfsöryggi þessa fólks hlýtur að vakna sú spurning í þeirra huga hvort ekki sé kominn tími til að draga sig í hlé, ekki vegna þess að þeim falli ekki kennslan vel, ekki vegna þess að nemendur kunni þeim ekki vel sem kennurum og ekki vegna þess að þeir hafi ekki verið valdir til trúnaðar af sínum samstarfsmönnum, heldur vegna hins, að þjóðfélagið gerir þeim ókleift að rækja þetta starf áfram.

Ég held að þetta mál sé ekki einfalt. Ég held að þetta þing, sem nú situr, breyti engu um það hvort kennarar úti á landi séu fleiri eða færri með fulla menntun á þessum vetri eða næsta, öll tilskilin próf. Það held ég ekki. Ég held að við eigum ekki að tala um þetta mál á þessum grundvelli.

Ég sem gamall kennari í hópi þeirra sem ekki höfðu full réttindi veit vel hvaða augum við litum þá baráttu okkar að fá full starfsréttindi og knýja þjóðfélagið til að gefa okkur einhvern kost á því að sækja þau námskeið sem gild gætu orðið til þess að við gætum öðlast festu í starfi, verið settir til óákveðins tíma eins og var sá draumur sem við gátum vænst að rættist bestur. Auðvitað var þetta mikil barátta. Það var það. Á þeim tíma byrjaði það að tíðkast að þeir kennarar sem ekki höfðu fyllstu réttindi urðu að gegna störfum við lægra kaupi en aðrir kennarar. Og svo er það nú. Það munar verulegu í mánaðarlaunum hvort kennarar hafa tilskilin réttindi eða ekki. Þar eru því ekki greidd sömu laun fyrir sömu vinnu. Þetta liggur á borðinu. Ég vil líka segja að það fer misjöfnum sögum af því hvaða gagn kennarar hafa haft af þeim námskeiðum sem þeir hafa verið skyldugir til að sækja suður hingað til þess að öðlast réttindi. Samt hafa þeir sótt á þessi námskeið, lagt sig fram. Ég vil segja: Það er ekki lítil menntun að hafa kannske skilað afburða árangri í kennslustarfi í 10 eða 15 ár og njóta vaxandi trausts allra þeirra sem með þeim starfa, nemenda og kennara. Þetta er mikil menntun, þetta er mikið starf og mikil sjálfsögun, miklir mannkostir sem þessir menn hafa. Mér finnst þess vegna heldur verra þegar verið er að tala um þessi alvörumál hér í sölum Alþingis æ ofan í æ í því skyni að nota þau sem pólitískan vettvang fyrir umræðu sem mér finnst vera og hafa verið á of lágu plani.