19.06.1985
Neðri deild: 105. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6936 í B-deild Alþingistíðinda. (6263)
86. mál, áfengislög
Frsm. meiri hl. (Páll Dagbjartsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. um frv. til l. um breyt. á áfengislögum nr. 82 frá 1969 á þskj. 1326 frá meiri hl. allshn.
Nefndin fékk til umfjöllunar frv. svo sem það hafði verið samþykkt í Ed. 12. júní 1985 (þskj. 1263). Þá var einnig samhliða til umræðu í nefndinni brtt. frá hv. þm. Halldóri Blöndal og Ellert B. Schram á þskj. 1269 um sama efni.
Eðli málsins samkvæmt fjallaði nefndin fyrst og fremst um það á þessum þremur fundum sem haldnir voru um málið hvort ríkisstj. skyldi láta fara fram á árinu 1985 atkvgr. meðal allra kosningarbærra manna um það hvort leyfa skuli innflutning og framleiðslu á áfengu öli eða ekki.
Nefndin klofnaði í afstöðu til málsins og mun Guðmundur Einarsson gera grein fyrir séráliti sínu í umræðum.
Það er niðurstaða meiri hl. allshn. að Alþingi sjálfu sé rétt og skylt að taka afstöðu til þessa máls. Meiri hl. nefndarinnar er andvígur því að frv. á þskj. 1263 verði samþykkt og leggur til að brtt. á þskj. 1269 komi til atkvæða.
Undir þetta rita auk mín Gunnar G. Schram, Ólafur Þ. Þórðarson, Stefán Guðmundsson, Kjartan Ólafsson, Friðjón Þórðarson.
Í sjálfu sér er ekki miklu við þetta að bæta. Það skal aðeins ítrekað að sex af sjö nm. voru á móti þjóðaratkvgr., enda er það í samræmi við fyrri afgreiðslu þessa máls frá hv. Nd.