19.06.1985
Neðri deild: 105. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6938 í B-deild Alþingistíðinda. (6266)

86. mál, áfengislög

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Menn getur greint á efnislega um þetta mál og hefur greint á um það. Menn geta verið með eða á móti bjór. En af viðræðum mínum við hv. alþm. hefur mér virst að meiri hl. þeirra væri sammála um eitt: að það skipti meginmáli að Alþingi tæki afstöðu með eða móti því lagafrv. sem hér hefur verið að velkjast í meðförum þings langan tíma. Um það gætu menn verið sammála, jafnvel hvorir tveggja, þeir sem eru með eða á móti, að það sé Alþingi til vansa hvernig komið er ef þannig fer að Alþingi tekur ekki afstöðu til málsins heldur vísar því frá sér.

Eftir afgreiðslu Ed. getur svo farið af þingtæknilegum ástæðum að þetta sé ógjörningur. Það er hægt að hugsa sér að þeir sem vilja koma þessu máli fyrir kattarnef og eru andvígir því sjái til þess þá leið færasta að styðja brtt. hv. þm. Halldórs Blöndals og Ellerts Schram, sem er um að Nd. árétti efnislega stuðning sinn við frv., vegna þess að það er vís leið til að koma málinu fyrir kattarnef. Verði till. samþykkt fer frv. til Ed. Allar líkur benda til að Ed. geri á því breytingar sem þýðir að það verður að fara fyrir Sþ. þar sem tilskilinn er meiri hluti að 2/3. Sennilega er sú leið þegar ófær tímans vegna þó ekki væri annað. Það mundi verða Alþingi til langvarandi háðungar að af þingtæknilegum ástæðum skuli málið klúðrast með þessum hætti. M. ö. o.: þeir sem eru á móti bjór styðja till. á þskj. 1269 til að koma málinu fyrir kattarnef. Í huga annarra er mönnum mjög á móti skapi að vísa þessu máli frá án efnislegrar afstöðu og slíkir menn eru andvígir þjóðaratkvæðinu. Hugsanlegt væri að málsmeðferðin yrði þessi af þingtæknilegum ástæðum: Fyrst yrði felld brtt. hv. þm. Halldórs Blöndals og Ellerts Schram. Því næst yrði felld till. um þjóðaratkv. Hver er þá niðurstaðan á afgreiðslu Alþingis? Þvílík niðurstaða eftir margra mánaða umfjöllun! Það yrði þokkalegt til frásagnar um getu þessarar hv. stofnunar til þess að taka afstöðu, segja já eða nei í einföldu máli.

Afstaða Ed. opnaði því miður leiðina til þessarar niðurstöðu ef ekki verður að gert. Hún var sú að taka ekki afstöðu til málsins, heldur veigra sér við því og víkja sér undan því og vísa því til þjóðarinnar. Hún var í annan stað í því fólgin að þjóðaratkvgr. var ekki gerð bindandi. Og í þriðja lagi fól hún það í sér að þjóðaratkvgr. átti að fara fram einhvern tíma á árinu 1985. Það hefði þýtt, eins og hv. þm. Halldór Blöndal var að lýsa, að þjóðin hefði átt yfir höfði sér heldur ömurlega áfengismálaumræðu, ekki aðeins þetta sumar heldur kannske fram eftir hausti, og það hefði væntanlega yfirgnæft og skyggt á önnur mál og verðskuldar það þó vissulega ekki. Það eru þess vegna allar líkur á því að Alþingi sé búið að koma málinu í þann hnút að óbreyttu að það fáist engin niðurstaða eða niðurstaða sem er gjörsamlega óviðunandi og Alþingi til háborinnar skammar og varanlegrar háðungar.

Ástæðan fyrir því að ég flyt nú brtt. við þetta frv. til 1., þ. e. eins og það kemur frá Ed., um þjóðaratkvgr., er sú að ég vil koma í veg fyrir að Alþingi verði sér til skammar með þessum hætti. Ég sé enga lausn á málinu úr því sem komið er aðra en þá að horfast í augu við þessar staðreyndir, tímahrakið og að það verður að reyna að ná einhverri málamiðlun milli beggja deildanna, þ. e. Nd. sem samþykkti frv. efnislega og Ed. sem vék sér undan því að taka efnislega afstöðu en samþykkti till. um þjóðaratkvæði. Till. mín er því sú að hv. Nd. sætti sig við tillöguna um þjóðaratkvæði í trausti þess að Ed. muni þá ekki gera frekari breytingar á málinu, enda hefur hún þá fengið því framgengt sem á að vera meginkjarni þeirrar afstöðu, þ. e. þjóðaratkvæði. En við skilyrðum þessa þjóðaratkvgr. með tvennum hætti.

Í fyrsta lagi fari þjóðaratkvgr. fram ekki síðar en 15. september á þessu hausti. Það er í samræmi við þá till. sem hv. þm. Karvel Pálmason flutti hér og það mundi a. m. k. stytta þann tíma sem áfengisumræðan ríður húsum, agúrkutímabilið og yrði þannig að minni skaða.

Í annan stað — og það er kannske kjarni málsins — elur till. mín í sér að þjóðaratkvgr. hafi merkingu og inntak. Sá texti hljóðar svo:

„Fallist meiri hluti kjósenda á framangreindar breytingar á lögunum skal ríkisstj. leggja fyrir Alþingi, við upphaf næsta þings, frv. til. l. um breytingu á áfengislögum til staðfestingar á niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslunnar.“

Samkv. ákvæðum íslensku stjórnarskrárinnar er ekki unnt tæknilega að flytja till. um þjóðaratkvgr. sem skuli vera bindandi. Þetta er hins vegar leið til þess að skylda ríkisstj. til að framfylgja niðurstöðum þjóðaratkvgr. Þar með hefur þessi till. um þjóðaratkvgr. einhverja merkingu, einhvern tilgang, eitthvert inntak. Fyrir nú utan það að vel færi á því að hæstv. dómsmrh. ætti aðild að því að flytja málið þegar þjóðin hefur kveðið upp sinn úrskurð — maðurinn sem hefur fjölgað vínveitingastöðum, að sögn kunnugra, um 50% þó að það megi gjarnan heita aukaatriði málsins.

Ég held að þessi orð nægi til að skýra forsendurnar og rökin á bak við þessa till. Þau eru einfaldlega þessi: Úr því sem komið er varðar það Alþingi nokkru að koma í veg fyrir að þessu máli verði klúðrað í tímahraki þannig að niðurstaðan verði í engu samræmi við meirihlutavilja á Alþingi. Eins og málið lá fyrir eftir afgreiðslu Ed. var fullkomlega hætta á því að þeir sem væru andstæðir bjórnum gætu helst fylgt því eftir með því að greiða þannig atkvæði að atkvgr. mundi ekki endurspegla neina efnislega afstöðu. Till. mín kemur í veg fyrir það þannig að afgreiðsla málsins, ef hún yrði samþykkt, liggur þá ljós fyrir.

Ef hv. Nd. sættir sig við í tímahraki að leita eftir samkomulagi við Ed. þýðir það það að hv. þm. í Nd. veiti ekki brautargengi efnislegri till. þeirra hv. þm. Halldórs Blöndals og Ellerts Schram, en að þeirri till. fallinni samþykki þeir brtt. við afgreiðslu Ed. sem felur þá í sér í fyrsta lagi að þjóðaratkvgr. fer fram fyrr en ella hefði verið og í annan stað að hún verði bindandi því að afstaða Ed. hefur enga merkingu og leiðir til engrar niðurstöðu þegar þjóðaratkvgr. er ekki bindandi. Úrslit geta orðið tvísýn og það er engin ástæða til þess að ætla að ríkisstj. eða stjórnarmeirihluti mundu flytja mál af þessu tagi eða að úrslit þjóðaratkvgr. mundu breyta niðurstöðu þm.

Það er engan veginn víst, þrátt fyrir að liðið sé á þinghaldið, að Ed., sem er fámenn og heldur ekki uppi löngum ræðum um mál, geti ekki tímans vegna afgreitt málið fari atkvgr. svona í Nd. M. ö. o.: Þetta er eina leiðin sem ég sé til að knýja fram efnislega afgreiðslu í málinu sem a. m. k. firri Alþingi þeim vansa að hafa klúðrað því af ástæðum sem enginn einstakur þm. eða hópur þm. fékk nokkuð við ráðið. (Gripið fram í: Farðu þá að hætta þessu.) Þar með get ég látið mínu máli lokið og þakka fyrir viturlega ábendingu.