19.06.1985
Neðri deild: 105. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6944 í B-deild Alþingistíðinda. (6273)

210. mál, selveiðar við Ísland

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Ég vil víkja nokkrum orðum að þessu frv. til laga um selveiðar við Ísland.

Í umr. um þetta mál hér á Alþingi, bæði síðastliðið ár og ekki síður nú í ár, hefur komið greinilega fram að málið er bæði viðkvæmt og umdeilt. Varðar því miklu að ná um það sáttum og komast að niðurstöðu þar sem ólíkir aðilar mega vel við una. Því sætir það furðu að í því frv. sem hér liggur fyrir skuli hafnað óskoruðum tillögurétti ýmissa hagsmuna- og áhugaaðila til að móta stefnu í þessum efnum.

Það er tæplega hagur nokkurs Íslendings að veiða eða selja ormétinn fisk. Hins vegar bera Íslendingar eins og aðrir menn ábyrgð á því að umgangast það lífríki, sem þeir byggja afkomu sína á, með skynsemi og virðingu. Þetta á ekki síst við um þau mál sem lítt eru skilin eða könnuð. Mér vitanlega liggur ekki fyrir næg þekking á samhengi hringormasýkingar í sel og fiski til þess að seki selsins sé ótvíræð. Það er því miklum vafa undirorpið hvernig best er að bregðast við. Ég vil benda mönnum á að við Íslendingar höfum eins og aðrir farið flatt á því að grípa gerræðislega af takmörkuðum skilningi inn í lífkeðjuna með stundarhagsmuni að leiðarljósi.

Ég sat 5. náttúruverndarþing 1984 sem fulltrúi Kvennalistans. Þar samþykkti ég eftirfarandi ályktun ásamt öðrum sem ég vitna til, með leyfi forseta:

„Fimmta náttúruverndarþing 1984 telur núverandi ástand í selveiðum algerlega óviðunandi og óréttlætanlegt að leyfa útgerð á sel með skotvopnum hvar sem er, svo sem á friðlýstum svæðum og látrum. Náttúruverndarþing telur því aðkallandi að hraðað verði setningu laga um selveiðar hér við land.

Varðandi frv. það sem lagt hefur verið fram á Alþingi leggur þingið eindregið til að 3. gr. frv. verði breytt. Hún hljóðar svo í frv.:

„Sjútvrn. skal hafa samráð við eftirtalda aðila um stjórn og skipulagningu selveiða, eftir því sem við á hverju sinni: Náttúruverndarráð, Hafrannsóknastofnun, Búnaðarfélag Íslands og Fiskifélag Íslands.“ Lagt er til að 3. gr. verði orðuð svo og er þetta orðalag í samræmi við það sem hin stjórnskipaða nefnd er samdi frv. lagði til:

„Til aðstoðar sjútvrn. um stjórn og skipulagningu selveiða skipar ráðh. nefnd til tveggja ára í senn og skal hún skipuð fimm mönnum. Skal einn nefndarmanna skipaður skv. tilnefningu Náttúruverndarráðs, einn skv. tilnefningu Hafrannsóknastofnunar, einn skv. tilnefningu Búnaðarfélags Íslands, einn skv. tilnefningu Fiskifélags Íslands en einn án tilnefningar. Ráðh. skipar formann nefndarinnar úr hópi þessara fimm manna. Tillagna nefndarinnar skal leitað vegna setningar reglna og annarra ákvarðana er varða selveiðar og ber nefndinni að gera tillögur til sjútvrn. um hvaðeina er hún telur ástæðu til í sambandi við stjórnun og skipulagningu selveiða.“

Bent skal á upphaflega greinargerð með 3. gr.. en hún er svohljóðandi:

„Í 3. gr. er gert ráð fyrir stofnun nefndar sem sé rn. til aðstoðar um skipulag og stjórn selveiða. Nefnd þessi er hugsuð þannig að í henni séu aðilar frá samtökum og stofnunum sem selveiðar snerta með mismunandi hætti. Er ljóst að sjútvrn. þyrfti fyrir allar veigameiri ákvarðanir varðandi selveiðar að hafa samráð við þau samtök og stofnanir sem nefndar eru í þessari grein og því heppilegast að setja á laggirnar nefnd skipaða fulltrúum þessara aðila þannig að samráð og samstarf allra viðkomandi aðila yrði sem best tryggt.

Rn. mundi leita umsagnar nefndar þessarar varðandi ákvarðanir sem það tæki um selveiðar og eins mundi nefndin að eigin frumkvæði koma með tillögur og ábendingar um atriði sem að þessum málum lúta.“

Náttúruverndarráð leggur eindregið til að 3. gr. frv. verði færð í fyrra horf og er þá samþykkt frv., en nái sú breyting ekki fram að ganga telur ráðið að endurskoða verði ýmsar greinar þess, t. d. 6. og 8. gr.“

Síðan hefur komið út ítarleg grg. á vegum Landverndar um seli og hringorma í tilefni af verðlaunaveitingum hringormanefndar samin af Sigrúnu Helgadóttur, Stefáni Bergmann og Ævari Petersen.

Eins og ég áður nefndi hafa enn fremur komið fram mjög skiptar skoðanir á því hvernig þessum málum skuli ráðstafað. Eru það bæði fulltrúar rn. svo og hinna ýmsu hagsmuna- og áhugahópa sem hafa lýst yfir efasemdum og andstöðu sinni við þá tilhögun sem lýst hefur verið í því frv. sem hér liggur fyrir þinginu og nú síðast í umr. í kvöld.

Það er ekkert, sem fram hefur komið í þessu máli, sem knýr mig til að falla frá þeirri samþykkt sem ég var aðili að á síðasta náttúruverndarþingi. Miklu fremur hafa mér aukist ástæður til þess að standa að þeirri samþykkt við síðari málsmeðferð. Það er engan veginn tryggt að það rn. sem fer með hagsmuni sjávarútvegs muni tryggja hagsmuni sela eða endilega finna eitt saman, án samráðs við aðra aðila, farsælasta leið til þess að fækka hringormi með seladrápi einu saman. Ég er þó engan veginn að draga úr mikilvægi þess að við getum náð heilbrigðum fisk úr sjó og ekki síður tel ég mikilvægt að við látum þetta dýrmæta hráefni svo ekki skemmast í fórum okkar eftir að við höfum náð því úr sjónum. En það er önnur saga.

Ég hefði viljað lesa athugasemdir við frv. sem koma fram í áðurnefndri grg. um seli og hringorma, en ég ætla að láta nægja að lesa lokakafla í þessum athugasemdum þar sem segir að þau séu fleiri villtu dýrin sem um er deilt á Íslandi en selir og má nefna ref, mink, hreindýr, mýs, rottur, máva, hrafn, örn, rjúpu, gæsir, álft, endur, æðarfugl og hvali. Það er brýn þörf á því að samin verði heildarlöggjöf um skipulag rannsókna á villtum dýrum og stjórn þeirra. En nú fellur þessi málaflokkur undir a. m. k. fjögur rn. Þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á villtum dýrum hafa verið tilviljanakenndar og háðar áhuga einstakra manna. Enginn einn aðili í stjórnkerfinu ber ábyrgð á því að fylgst sé með þessum dýrum. Er þeim að fjölga? Eru einhver þeirra í útrýmingarhættu? Eru fækkunaraðgerðir árangursríkar og borga þær sig? Og þannig mætti lengi spyrja. Á sama hátt og Hafrannsóknastofnun fylgist með nýtingu okkar á gæðum hafsins, stundar vísindarannsóknir og kemur með tillögur um nýtingu, Veiðimálastofnun fylgist með nýtingu áa og vatna og Landgræðslan nýtingu gróðurlenda, þá ætti að vera til óháður rannsóknaraðili sem hefði með að gera rannsóknir á villtum dýrum og kæmi með rökstuddar tillögur um stjórn þeirra.

Að svo mæltu vil ég leggja til að þetta mál verði endurskoðað og að reynt verði að ná um það farsælum sáttum þannig að allir megi vel við una því að vitanlega er það hagur allra og velferð að við komumst að sameiginlegri niðurstöðu í þessu máli.