19.06.1985
Neðri deild: 105. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6948 í B-deild Alþingistíðinda. (6280)

210. mál, selveiðar við Ísland

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Ég mundi hafa viljað að ýmsar greinar væru á annan hátt orðaðar. Ég er ekki með tillögur þar um, en tel að þarna hefði mátt gera betur, en með hliðsjón af því að þetta er eitt stærsta vandamál í íslenskum sjávarútvegi segi ég hiklaust já.