20.06.1985
Sameinað þing: 99. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6966 í B-deild Alþingistíðinda. (6313)
473. mál, söluskattur af bókum
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þær tilraunir sem hún hefur gert til þess að afla upplýsinga um það sem spurt er um hér. Auðvitað er það rétt hjá hæstv. ráðh. að menntmrn. hefur ekki með álagningu söluskatts að gera, það er fjmrn. Hins vegar er það menntmrn. sem hefur með að gera menningarmál og Launasjóð rithöfunda og þegar umræður fóru fram um hann á Alþingi á sínum tíma var gert ráð fyrir því að taka mið af innheimtu söluskatts af bókum við ákvörðun upphæða í þennan sjóð. Ég vil hins vegar þakka hæstv. ráðh. fyrir þær tilraunir sem hún hefur gert til þess að afla upplýsinga: að er greinilegt að það er ekki einfalt að fá fram svör. Ég vil einnig þakka henni fyrir þær áætlanir eða ágiskanir sem fram koma af hálfu menntmrn. í þessu efni, sem eru á þá leið að tekjur af bókum á árinu 1985 gætu verið í kringum 100 millj. kr. Það er eins og kunnugt er ekki nema hluti af þeirri upphæð, lítill hluti af þeirri upphæð sem eins og er rennur í Launasjóð íslenskra rithöfunda. Mér sýnist að þetta mál liggi þannig að það hljóti að hvetja þm. til þess að taka upp málefni Launasjóðs rithöfunda og reyndar annarra listamanna á haustþingi til þess að fjalla um þau í heild. Ég minni á að fyrir þinginu liggur nú till. frá mér og fleiri þm. Alþb. um málefni myndlistarmanna sem sjálfsagt er að skoða í þessu samhengi líka. Hér er sem sagt um verulegar tekjur að ræða af íslenskri bókmenntastarfsemi sem renna í ríkissjóð og aðeins brot af þeim tekjum rennur í Launasjóð rithöfunda eins og er.