20.06.1985
Sameinað þing: 99. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6972 í B-deild Alþingistíðinda. (6318)
510. mál, Ríkismat sjávarafurða
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Það er augljóst að það er spurt oft á tíðum um hin þýðingarmestu mál. En það getur á engan hátt breytt þingsköpum. Það er ákveðinn tími sem ráðh. hefur. En það má finna þá lausn í þessu máli sem ég vænti að komi að notum, að ráðh. haldi áfram nú. En ef hann þarf að nota síðari umferð í ræðutíma sínum, þá verður dreginn frá sá tími sem fram yfir fer í fyrri umferðinni. Og ráðh. heldur þá áfram.