20.06.1985
Sameinað þing: 99. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6973 í B-deild Alþingistíðinda. (6320)

510. mál, Ríkismat sjávarafurða

Guðmundur Einarsson:

Herra forseti. Hér er augljóslega um yfirgripsmikið mál að ræða, og það er afleitt að í svona umræðum þar sem tekist er á um ákveðin grundvallaratriði, skuli sjútvrh. hreinlega lenda í því í fyrstu atrennu að tala sig dauðan. Ég geri það hér með að tillögu minni sem sjútvrh. í Nd.. þar sem nú er komið að lokum þessa þings, að þetta mál verði tekið upp í sjútvn. Nd. í haust. Þar fór fram mikil umræða um lögin um Ríkismat á sínum tíma. Nú liggja fyrir fyllri upplýsingar, m. a. álit prófessors Sigurðar Líndals, og mér sýnist á öllu að þetta mál verði hreinlega ekki útkljáð eða rannsakað eins og nauðsynlegt er í þessari umræðu hér.

Ég vildi aðeins gera örfá atriði að umræðuefni á þessum mjög stutta tíma sem ég því miður hef hér óumflýjanlega. Menn geta haft mismunandi hugmyndir um það hvernig eigi að haga mati sjávarafurða og mismunandi hugmyndir um hlutdeild ríkisins og hlutdeild framleiðenda. Sjálfur hef ég talað fyrir aukinni hlutdeild framleiðendanna í þessum efnum en það er alveg ljóst að fara verður að lögum og ég fæ ekki betur séð, ef ég ber saman lög og reglugerð, en eftirlitsmönnum framleiðenda beri skv. 18. gr. laganna að fylgjast með yfirmati sem fram fer á vegum Ríkismats. Það er m. ö. o. augljóst hver leikur þar fyrstu fiðlu. Það er Ríkismatið. Þar eru svo hins vegar eftirlitsmenn framleiðendanna í því hlutverki að fylgjast með. Þeir eru á annarri fiðlu.

Það sem gerist hins vegar þegar kemur yfir í reglugerðina er að þá hefur hljómsveitarskipanin snúist við. Þá gerist það skv. 8. gr. reglugerðar, ef ég man rétt að Ríkismat sjávarafurða fylgist með því að eftirlitsstarfsemi útflytjanda sé fullnægjandi og úttekt afurða sé í samræmi við gildandi fyrirmæli. Þarna virðist mér verða viss áherslumunur, þannig að skv. lögum sé það að frumkvæði Ríkismats að yfirmat er gert, en það breytist þegar kemur til reglugerðarinnar.

Mér sýnist að með bréfi frá sjútvrn. 21. nóv. 1984, þar sem gerð er tilraun til þess að skilgreina yfirmat það er talað um úttektarmat og yfirmat, þá sé verið að undirbúa þessa breytingu, sem síðan kemur fram í reglugerð, þar sem stendur að sjútvrn. geti falið eftirlitsmönnum framleiðenda flokkun og úttekt sjávarafurða til útflutnings. Með þessum litteratúr er þessari kúvendingu komið í gegn. Ég tel að þarna sé augljóslega á ferðinni svo mikið misræmi milli laganna og reglugerðar að það sé óumflýjanlegt að sú nefnd sem mest vann í þessum málum á síðasta þingi, sjútvn. Nd., taki málið upp í haust. Ég mun fara formlega fram á það við formann nefndarinnar að svo verði gert vegna þess að augljóst er að þetta mál verður ekki rætt á fullnægjandi hátt hér í ræðustólnum.