20.06.1985
Sameinað þing: 99. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6976 í B-deild Alþingistíðinda. (6323)
510. mál, Ríkismat sjávarafurða
Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það sem ég vil leggja áherslu á á þessum tveimur, þremur mínútum sem þm. hafa hér til að segja nokkur orð er þetta:
Alþingi setur lög. Um þau lög var mikill ágreiningur. Margir voru þeirrar skoðunar að lögin væru klúður. Þau mundu gera illt verra, flækja málin og gera mat á sjávarafurðum flóknara og erfiðara en verið hafði. En engu að síður, lögin voru sett, löggjafinn hafði talað, og þegar löggjafinn hafði tjáð skoðun sína á því hvernig mat á sjávarafurðum ætti að fara fram, þá átti ráðherra að framkvæma lögin. Til þess er hann. Ef ráðherra komst að þeirri niðurstöðu um síðustu áramót að lögin væru óframkvæmanleg, svo vitlaus sem þau eru, og ég get vel trúað því, þá átti ráðherra auðvitað að leggja til við Alþingi breytingar á lögunum. En í staðinn fyrir að leggja til við Alþingi breytingar á lögunum, þá ákveður ráðherra að breyta lögunum með reglugerð. Slíkt getur Alþingi ekki látið bjóða sér. Í framhaldi af þessari umræðu og þeim upplýsingum sem hér hafa komið fram hlýt ég að skora á hæstv. sjútvrh. að sjá sóma sinn í því að fella þessa reglugerð úr gildi. Hún er vitleysa og stenst ekki lög.