20.06.1985
Sameinað þing: 99. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6976 í B-deild Alþingistíðinda. (6324)
510. mál, Ríkismat sjávarafurða
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég mótmæli því, sem hér er haldið fram, að hér hafi verið brotin lög, Ég vitnaði í ákveðnar greinar í lögunum þar sem heimilað er að stofna slíkar deildir eins og hjá Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda.
Eru menn þá að halda því fram að það hafi verið ólöglegt allan tímann að SH og SÍS rækju slíkar deildir? Vilja menn halda því fram? Hafa menn svona mikinn áhuga á því að hafa allt undir opinberum rekstri að allt eftirlit með fiskinum eigi að vera þar? Það er meiri tiltrúin á opinberan rekstur sem kemur fram hjá þessum hv. þm. Auðvitað skiptir mestu máli að þeir aðilar sem vinna á markaði og eru að selja þessa vöru beri þarna mesta ábyrgð sjálfir og reyni að framkvæma sem vandaðast eftirlit. Ríkismat sjávarafurða hefur eftirlit með þessum eftirlitsdeildum og það er ekki ástæða til annars en að hrósa þeim öllum fyrir ágætt starf. Ég er alveg viss um að opinber eftirlitsstofnun gæti ekki unnið það eins vel og þær hafa gert.
Aðalatriði þessa máls er að sjálfsögðu hvort gæði íslenskra afurða fara batnandi eða ekki. Okkar útflutningstölur segja að svo hafi verið. Við höfum verið að selja miklu meira af fiski að undanförnu í gæðaflokkum en áður. Við erum að koma öllum okkar afurðum út án þess að framleiða skreið. Þetta skiptir meginmáli.
Ég vil að lokum mótmæla því að hér hafi verið brotin lög. Hitt er svo annað mál að viðkvæm löggjöf eins og þessi þarf ávallt að vera í endurskoðun og taka mið af reynslunni. Ég tek fyllilega undir það.
Og að sjálfsögðu er ýmislegt í þessari löggjöf sem mætti betur fara eins og í mörgum öðrum lögum. Það eiga menn að viðurkenna. En ég viðurkenni alls ekki og mótmæli því mjög harðlega að hér hafi verið brotin lög. Og mér er alveg sama hvað prófessor Sigurður Líndal segir um það.