20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6982 í B-deild Alþingistíðinda. (6340)
383. mál, upplýsingamiðlun um húsnæðis- og byggingarmál
Frsm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. Atvmn. hefur fjallað um till. til þál. um upplýsingamiðlun um húsnæðis- og byggingamál, sem flutt var af hv. þm. Guðmundi Einarssyni o. fl. fyrr á þessu þingi, en till. sama efnis var flutt á síðasta þingi en hlaut þar ekki fullnaðarafgreiðslu. Nefndin hefur fjallað um till. og farið yfir umsagnir sem borist hafa og mælir nefndin með því að till. verði samþykkt með breytingum og er brtt. flutt á þskj. 1251 og er svohljóðandi:
„Tillgr. orðist svo:
Alþingi ályktar að að fela ríkisstj. að skipuleggja og hrinda í framkvæmd því verkefni að efla upplýsingamiðlun um húsnæðis- og byggingarmál til almennings og aðila í byggingariðnaði. Slík upplýsingamiðlun gæti t. d. orðið með eftirtöldum hætti: Útgáfu handbóka, námskeiðahaldi og söfnun tölvutækra gagna. Hafa skal samráð við eftirtalda aðila: Upplýsingaþjónustu Rannsóknaráðs, Byggingarþjónustuna, Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins, Reiknistofnun Háskóla Íslands, Iðntæknistofnun, Húsnæðisstofnun ríkisins og Landssamband iðnaðarmanna.“
Undir þetta nál. rituðu Kristín S. Kvaran, Eggert Haukdal, Jóhanna Sigurðardóttir, Björn Dagbjartsson og undirritaður.
Tveir nm. voru fjarverandi þegar þetta mál var afgreitt.