20.06.1985
Sameinað þing: 100. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 6994 í B-deild Alþingistíðinda. (6379)
529. mál, markaðsverkefni sjávarútvegsráðuneytisins
Árangurinn til þessa liggur m. a. í eftirfarandi:
1. Komið hefur verið á nánum tengslum við alþjóðlegar stofnanir sem hafa mikilvægu hlutverki að gegna við uppbyggingu sjávarútvegs í þróunarlöndum. Stofnanir þessar eru: FAO, Afþjóðabankinn og IFC. Einnig hefur verið komið á samskiptum við fyrirtæki og einstaklinga sem starfa við sjávarútveg í öðrum löndum.
2. Safnað hefur verið upplýsingum um það í hvaða löndum helst megi vænta árangurs með þátttöku íslenskra fyrirtækja í fiskveiðiverkefnum.
3. Safnað hefur verið upplýsingum sem að gagni koma til að meta hvernig við eigum að standa að því að taka þátt í fiskveiðiverkefnum erlendis.
Ef niðurstaðan verður sú að rétt sé að halda verkefninu áfram er mjög mikilvægt að samræma það annarri útflutningshvetjandi starfsemi.
Í samkomulagi stjórnarflokkanna um aðgerðir í efnahags- og atvinnumálum og um breytingar á stjórnkerfinu, frá 6. september 1984, kemur fram að átak verði gert til að efla íslenska útflutningsstarfsemi og leita markaða fyrir íslensk fyrirtæki erlendis. Í því skyni á að stofna útflutningsráð er nái til allra atvinnuveganna. Að stofnun slíks útflutningsráðs er nú unnið. Markaðsverkefni sjávarútvegsráðuneytisins ætti að geta fallið vel að starfsemi slíks útflutningsráðs.
3. Við hvaða erlenda aðila hefur verið haft samband í tengslum við þetta verkefni og hvernig er talið að það geti leitt til aukinna útflutningstekna?
Þær alþjóðlegu stofnanir, sem haft hefur verið samband við í tengslum við verkefnið, eru Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), Alþjóðabankinn, International Finance Corporation og Nordic Project Fund. Einnig hefur verið haft samband við nokkur verkfræði- og ráðgjafarfyrirtæki í Bandaríkjunum sem hafa reynslu af skipulagningu og uppbyggingu sjávarútvegs í þriðja heiminum. Auk þess er nú unnið að því að afla upplýsinga hjá norrænum sjóðum svo sem Industrialiseringsfonden for Udviklingslandene (IFU) í Danmörku, Swedfund í Svíþjóð og Norad í Noregi. Sjóðir þessir taka þátt í fjárfestingu fyrirtækja frá viðkomandi landi í þriðja heiminum.
Stjórnendur markaðsverkefnisins hafa í samvinnu við íslensk fyrirtæki kannað möguleika á verkefnum í Costa Rica, Oman, S-Yemen og Alaska. Stjórnendur markaðsverkefnisins hafa einnig verið í tengslum við stjórnvöld og fyrirtæki frá nokkrum öðrum löndum. Ef verkefnaleit þessi skilar árangri er ljóst að hún getur leitt til aukinna útflutningstekna með því að selja:
a. ráðgjöf og stjórn við fiskveiðiverkefni,
b. tækni til sjávarútvegs og hönnun fiskiðjuvera og vinnslurása,
c. fiskafurðir fyrir þessar þjóðir á alþjóðamörkuðum.
4. Hvernig hyggst sjávarútvegsráðuneytið bregðast við óskum frá Yemen um samvinnu á sviði fiskveiða og fiskveiðitækni?
Ósk þessi er nú til athugunar hjá nefnd þeirri sem stjórnar markaðsverkefninu. Engar ákvarðanir hafa enn verið teknar um hvernig við þessari beiðni skuli brugðist.
5. Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins vegna verkefnisins til þessa?
Heildarkostnaður sjávarútvegsráðuneytisins vegna markaðsverkefnisins er 2 081 438 kr.
Í samvinnu við utanríkisráðuneytið, viðskiptaráðuneytið, Landssamband íslenskra útvegsmanna, Sölusamband íslenskra fiskframleiðenda og sjávarafurðadeild Sambands ísl. samvinnufélaga var gerð kynningarmynd um íslenskan sjávarútveg með ensku tali. Myndin heitir „Bringing in the Harvest“. Heildarkostnaður við myndina varð 774 075 kr. Þar af greiddi sjávarútvegsráðuneytið 361 575 kr. Er þessi kostnaður innifalinn í fyrrgreindum heildarkostnaði.