20.06.1985
Efri deild: 106. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7007 í B-deild Alþingistíðinda. (6389)
334. mál, Húsnæðisstofnun ríkisins
Frsm. (Davíð Aðalsteinsson):
Herra forseti. Félmn. hefur fjallað um þetta frv. til l. um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins nr. 60 1. júní 1984. Frv. þetta varðar sölu á íbúðum sem byggðar voru til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis fyrir gildistöku laga nr. 51 frá 1980.
Í lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins eru ákvæði um hvernig skuli fara með endursölu á íbúðum sem Framkvæmdanefnd byggingaráætlunar reisti, en hins vegar ekkert um endursölu íbúða sem reistar voru til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis.
Með þessu frv. er gert ráð fyrir því að þessar tvær tegundir íbúða fylgist að varðandi endursölu eins og áður. Í Nd. voru gerðar samþykktar breytingar á frv. sem ég sé ekki ástæðu til að fara frekar út í. Ég vil vekja athygli á því að líklega hefur láðst við afgreiðslu Nd. að hafa frv. áfram, eins og við framlagningu þess, í tveimur greinum. Eins og þetta liggur fyrir hér er frv. í einni grein en niðurlagið á, ef að líkum lætur, að vera 2. gr. frv. eins og það á að líta út nú. Ég vænti þess að þetta verði leiðrétt í prentun.
Nefndin leggur til að frv. verði samþykki óbreytt.