20.06.1985
Efri deild: 106. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7010 í B-deild Alþingistíðinda. (6393)
537. mál, áfengismál
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Í upphafi grg. með frv. stendur, með leyfi forseta: „Frv. þetta er flutt til að afstaða Alþingis til áfengismála verði skýrð til fullnustu.“ Minna má nú ekki gagn gera. Mér finnst að frvgr. sé óljós og þar af leiðandi felist í greininni sjálfri að það sé ekki með samþykkt hennar að afstaða Alþingis verði skýrð í einu eða neinu til fullnustu í þessu máli.
Fyrri hluti frvgr. segir: „Óheimilt er þrátt fyrir ákvæði annarra laga að blanda saman óáfengu öli og áfengum drykkjum til sölu á veitingastöðum.“ Ég veit ekki annað en þetta séu hlutir sem hafa gerst í ansi langan tíma án þess þó að þetta kerfi hafi verið byggt upp sem hinar svokölluðu ölknæpur síðustu ára hafa verið með. Óáfengu öli og áfengum drykkjum eða víni, brennivíni eða vodka, hefur verið blandað saman í áratugi, sjálfsagt eins lengi og þessar drykkjarvörur hafa verið fáanlegar. Mér finnst bókstaflega út í hött að ætla sér að fara að banna þá hluti með lögum.
Ég minnist þess fyrir um 30 árum síðan þegar ég var síldarsjómaður norður á Siglufirði og það hafði farið svo að allur blandari annar en pilsner og bjór hafði gengið til þurrðar. Ekki var um annað að ræða en blanda með pilsner og bjór og þetta tókst allt saman ágætlega. En að fara að banna það með lögum, ef við erum á annað borð með vín í landinu, að það sé blandað með þessari eða hinni tegundinni, þetta er algerlega út í bláinn. Það breytir raunverulega ekki neinu í áfengisstefnunni. (EgJ: Er bannað líka að blanda í vatni?) Það gæti verið ef þessu væri algerlega bannað að blanda. Það er rétt, það gæti verið, en þá skýrðist stefnan til fullnustu. Þetta er rétt, hv. 11. landsk. þm., að stefnan yrði þá skýrð til fullnustu ef við mættum ekki-(Gripið fram í: Blanda í annað en mjólk.) Já.
Hinn þátturinn eða seinni hluti frvgr. er um það að ekki sé leyfilegt að flytja með sér áfengt öl inn í landið. Greinin bendir til þess að það sé ekki verið að taka fyrir það að ferðalangar með flugvélum, sem koma til landsins, megi taka með sér öl í fríhöfninni í Keflavík, heldur bendir greinin til þess að hér sé eingöngu verið að banna svokallaðan toll sjómanna, sjómaðurinn megi ekki taka með sér frá útlöndum bjór, sem búið er að vera í gildi í áraraðir. Íslenskir sjómenn hafa fengið að taka með sér toll annaðhvort í bjór eða áfengum drykkjum. Mönnum hefur ekki fundist sú undanþága frá áfengisinnflutningi í landið brjóta eitthvað sérstaklega á þeim öðrum sem ekki hafa getað notið þess. Meginhluti laga er byggður upp þannig að það eru ákveðnar undanþágur og menn verða að búa við breytilegar reglur, jafnvel mismunandi eftir því hvar þeir eru staddir á landinu. Við verðum að búa við annan ökuhraða í þéttbýli en við búum við úti á vegum o. s. frv. Lögin ganga því ekki jafnt yfir mann hvar sem maður er staddur.
Ég held að það sé rétt að seinni hluti greinarinnar, sem hljóðar þannig: „Einnig er óheimilt þrátt fyrir ákvæði annarra laga að flytja með sér áfengt öl inn í landið“, hafi verið samin í fljótheitum og þarna hljóti að vera reiknað með því einnig að þeir, sem hafa möguleika á að grípa bjórinn um leið og þeir eru komnir inn í landið, eigi að vera þarna á bannlista líka. Mér finnst það fáránlegt að setja greinina þannig upp að fyrst og fremst sé þessu beint til sjómannatollsins. Eins og ég segi geri ég ráð fyrir því að meiningin sé hin að það eigi að ná til farþega sem eru að koma til landsins einnig þótt það komi ekki fram í tillgr. Mér finnst það vera smámunasemi. Þetta er tiltölulega lítið og breytir óskaplega litlu og það er ekki verið að mismuna neinum, það er verið að gera allt of mikið úr því. Sá bjórkassi sem kemur með skipi til landsins eða sá bjórkassi sem er tekinn með ferðamanninum á flugvelli, er vanalega settur einhvers staðar í horn og hafður til spari. Menn gera sér og gestum sínum til ánægju að koma með bjórinn sem þeir komu með úr ferðalaginu o. s. frv. En það breytir engu í áfengisstefnu eða áfengisneyslu, ekki nokkrum sköpuðum hlut. Og það er alveg út í hött að vera að tala um að þetta sé einhver mismunun gagnvart þegnum landsins, það er verið að gera allt of mikið úr þessu.
Í fyrri hlutanum er kveðið á um það að bannað sé að blanda saman óáfengu öli og áfengum drykkjum. Þarna þyrfti að vera miklu betri skilgreining á því hvað verið er að tala um þegar verið er að tala um óáfengt öl. Það er ekki eingöngu endilega pilsner og bjór frá Sanitas og Agli. Það gæti verið maltöl og það gæti verið hvítöl. Sumir kalla þann ágæta drykk Coca Cola líka bara öl og jafnvel Sódastream. (Gripið fram í.) Það þarf því betri og merkilegri skilgreiningu á þessu öllu saman til þess að hægt sé að taka mark á þessu og standa að því að frv. sé flutt til þess að afstaða Alþingis til áfengismála sé skýrð til fullnustu. Þetta þarf að vera miklu myndarlegra og betur skilgreint ef við eigum að trúa því að meiningin bak við þetta frv. eigi að vera til þess að fá afstöðu Alþingis skýrða til fullnustu í þessum málum.
Því vænti ég þess að það frv. sem hv. frsm. frv. hefur boðað að hann leggi fram í haust verði mun ítarlegra, skilgreini frekar hvern þátt þessara mála sem hann hefur lagt hér til. Vera má að það frv. gæti orðið til þess að ef samþykkt yrði — sem ég hef nú ekki mikla trú á ef það verður í þessum anda — að afstaða Alþingis til áfengismála yrði skýrð til fullnustu. Væri vel ef einhvern tíma kæmi að því.