20.06.1985
Neðri deild: 106. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7027 í B-deild Alþingistíðinda. (6418)

Um þingsköp

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það er stutt athugasemd út af orðum hæstv. félmrh.

Ég vísa því algerlega á bug, sem hæstv. félmrh. hélt hér fram, að orðið hafi mistök í deildinni og mál hafi verið tekið á dagskrá sem ekki átti að ræða. Það er upplýst af hæstv. forseta að ekkert hafi verið því til fyrirstöðu og um það samkomulag raunar, og undir það tók hv. þm. Páll Pétursson þingflokksformaður framsóknarmanna, að ef tóm gæfist til gætu öll þau mál sem á dagskránni eru komið til umr. Ég vil upplýsa hæstv. ráðh. um að um kl. 17.50, þ. e. tíu mínútum fyrir sex, var umr. lokið um þetta mál. Enn voru þá eftir 40 mínútur til þess tíma að hæstv. forseti hafði ákveðið atkvgr., en ekkert mál til að ræða. Búið var að taka fyrir þau mál sem lögð var áhersla á af þeim sem hér ráða ferðinni, en þó eftir tími sem hefði getað verið til umráða fyrir önnur mál ef einhver hefði verið hér við til að mæla fyrir þeim.

Hæstv. ráðh. sagði að það hefði a. m. k. átt að gera honum viðvart. Hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon upplýsti það hér að hann hefði óskað eftir því að ég sem forseti gerði ráðstafanir til að athuga um nærveru eða fjarveru hæstv. félmrh. Hann var fjarverandi þannig er ekki við forseta að sakast, heldur hæstv. ráðh. sjálfan.

Þetta vildi ég að kæmi fram. Ég segi enn: Ég er enginn æðsti dómari í þessum efnum. Mér getur orðið á eins og öðrum. En ég sé ekki enn og hef ekki verið um það sannfærður að hér hafi nein mistök átt sér stað. Ég heyri að hæstv. forseti deildarinnar er mér sammála og er hann miklu reyndari í forsetastarfi en ég.