20.06.1985
Neðri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7030 í B-deild Alþingistíðinda. (6436)

Um þingsköp

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það var gert hlé á ræðu hv. 2. þm. Norðurl. e. til að hann gæti aflað sér gagna og lesið sér til. Það er von mín af því að það mál er bæði stutt aflestrar og skjótt til aðfanga hvað gagnasöfnun snertir að það fáist upplýst af hæstv. forseta hvenær hann hyggur að hv. 2. þm. Norðurl. e. hafi lokið lestri og geti tekið afstöðu því fleiri geta talað hér um þingsköp en hv. 2. þm. Norðurl. e.