20.06.1985
Efri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7032 í B-deild Alþingistíðinda. (6441)
493. mál, sparisjóðir
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Á þskj. 1391 hef ég flutt brtt. við frv. til l. um sparisjóði og hún er svohljóðandi að á eftir 37. gr. komi ný mgr. sem hljóðar svo:
„Heildarskuldbindingar eins viðskiptaaðila við sparisjóði mega ekki nema meira en 35% af bókfærðu eigin fé sparisjóðsins. Sama gildir um heildarskuldbindingar fleiri en eins viðskiptaaðila sem eru svo fjárhagslega tengdir að með tilliti til útlánaáhættu verði að líta á skuldbindingar gagnvart sparisjóðnum í einu lagi.
Til heildarskuldbindinga skal undantekningarlaust telja allar skuldbindingar viðskiptaaðila við sparisjóðinn, þ. m. t. ábyrgðir sem sparisjóðurinn hefur gengið í fyrir viðskiptaaðila. Sé skuldarheimild önnur en bókfærð skuldbinding skal á hverjum tíma telja þá upphæð sem hærri er.
Með samþykki stjórnar sparisjóðsins í hverju einstöku tilviki megi heildarskuldbindingar viðskiptaaðila skv. ákvæði 1. og 2. mgr. nema hæst 50% af eigin fé. Slík ákvörðun skal tilkynnt bankaeftirlitinu þegar í stað.“
Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að hafa fleiri orð um þetta. Þetta er eina brtt. sem flutt er af okkar hálfu við þetta frv. Annars lýsum við stuðningi við það vegna þess að við teljum að í því sé margt sem til bóta horfi og breyti til betri vegar því sem fyrir er. Ég legg til að frv. verði samþykkt með þeirri brtt. sem ég hef nú mælt fyrir.