20.06.1985
Efri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7037 í B-deild Alþingistíðinda. (6447)
423. mál, viðskiptabankar
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Ég vil fullvissa hv. síðasta ræðumann um það að ríkisstj. er alls ekki horfin frá þeirri ætlun sinni að fækka ríkisbönkum og mér þótti ánægjulegt að heyra að okkar sjónarmið falla mjög saman að þessu leyti. Ég er sammála því sem hann sagði um nauðsyn þess að bankar sameinist, bæði ríkisbankar og einkabankar. En það er skoðun ríkisstj. að þetta frv. geri það auðveldara að breyta skipan ríkisbanka. Hæstv. viðskrh. skipaði fyrir nokkru sérstaka þriggja manna nefnd til þess að vinna það mál. Formaður þeirrar nefndar er Gylfi Þ. Gíslason prófessor, fyrrv. viðskrh., sem allir hér að sjálfsögðu þekkja. Mér er kunnugt um að þessi nefnd hefur unnið mikið starf, m. a. skoðað vandlega stöðu ríkisbankanna, skoðað vandlega dreifingu verkefna ríkisbankanna o. s. frv. sem allt þarf að liggja fyrir til að breyting á ríkisbönkunum verði á þann veg að eftir verði tveir bankar með verkefnaskiptingu sem er í jafnvægi. Segja má að erfiðleikarnir felist fyrst og fremst í því. Það er nauðsynlegt að atvinnuvegirnir skiptist sæmilega jafnt á þá ríkisbanka. Hins vegar vil ég taka undir það með hv. þm. að ég er sömu skoðunar og hann að í raun væri einn öflugur ríkisbanki nóg. Hins vegar vil ég taka það skýrt fram að þó að það sé mín skoðun þá hefur engin ákvörðun um slíkt verið tekin af ríkisstj.
En ég geri sem sagt ráð fyrir því að mjög fljótlega liggi fyrir tillögur þessarar nefndar. Ég hef séð viss drög og ég hef átt viðræður við formann nefndarinnar og hann hefur tjáð mér að það líði mjög að því að nefndin skili áliti.