20.06.1985
Efri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7037 í B-deild Alþingistíðinda. (6448)
423. mál, viðskiptabankar
Stefán Benediktsson:
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir brtt. á þskj. 1351 og 1353 um frv. til l. um viðskiptabanka. Þessar brtt. eru settar fram í samræmi við þá skoðun mína að þetta frv. fjalli í raun og veru eingöngu um tæknileg atriði sem afskaplega litlu skipta fyrir þá sem mestu máli skipta, þ. e. viðskiptavini þessara banka, fyrir litlu Gunnu og litla Jón. Þau koma ekki til með að merkja neina breytingu í viðskiptum sínum við íslenskt bankakerfi að þessu frv. samþykktu óbreyttu. Það skiptir afskaplega litlu máli fyrir þau hvort hugsanlega er um það að ræða að einhverjir bankar verði sameinaðir eða ekki og það skiptir afskaplega litlu máli fyrir þau þó að einhverjum smáatriðum í lögum, sem þegar eru í gildi um starfsemi banka nú í dag, verði breytt og lög þessi færð til samræmis innbyrðis. Það allt eru eingöngu tæknibrellur sem þjóna nánast engum.
Ég hef margsinnis vikið að skoðunum mínum á íslensku bankakerfi í umr. hér í vetur. Ég er þeirrar skoðunar að ríkiseign á bönkum sé íslensku efnahagslífi mjög til óþurftar. Ég hef margoft bent á það hér í umr. að þetta fyrirkomulag um eignarhald á bönkum þekkist hvergi á Vesturlöndum og það eitt ætti að verða einhverjum umhugsunaratriði. Ég benti á það líka í framsögu við 1. umr. að þetta ástand, sem við búum við hér í dag, er afleiðing nokkurs konar umferðarslyss sem varð hér í bankarekstri fyrir rúmum 50 árum síðan og að sósíalisering íslenskra banka er ekkert eðlilegt fyrirkomulag í efnahagsmálum nema þá í þeim ríkjum þar sem efnahagslífinu er algerlega og gersamlega stjórnað af miðstýrðu ríkisvaldi. Þar verður þetta fyrirkomulag eðlilegt og þess vegna kannske ekkert óeðlilegt að stjórnmálaöfl eins og Alþb. styðji fyrirkomulag sem þetta þar sem þau eru þó sprottin af rótum þeirra flokka sem stýra efnahagslífi austan járntjalds. En enn þá kynlegra er að aðrir flokkar, sem kenna sig við vestrænt lýðræði, skuti verja þetta kerfi með kjafti og klóm.
Ríkisbankar hafa hér verið reknir um 50 ára skeið, alltaf með efnahagspólitík ríkisvaldsins en aldrei vegna stöðu sinnar. Á Vesturlöndum almennt eru frjálsir bankar hemill á ríkisvald, hemill á efnahagsstjórn. Eða hvers vegna halda menn að verðbólga hafi geisað hér á Íslandi einu Vesturlanda eins og í öllum bananalýðveldum? Halda menn að það sé ekkert samhengi milli þess hvernig efnahagslíf er rekið hér á landi, ríkisstýrt, og þeirrar verðbólgu sem við bjuggum við hér um áratuga skeið, verðbólgu sem varð þeim mun einkennilegri fyrir okkur sem hluta af Vesturlöndum að hér var mikil framleiðsla og hlutfallslega mjög lítil útgjöld. En hér á Íslandi gátu bankarnir aldrei spyrnt fæti við fáránlegri efnahagspólitík stjórnvalda sem fólst í seðlaprentun. Þeir höfðu heldur ekki þá aðstöðu, sem bankar almennt hafa á Vesturlöndum, til þess að koma viti fyrir stjórnvöld. Þá komum við að þeirri spurningu: Hvers vegna í ósköpunum er mönnum svo annt um eignarhald ríkisins á bönkunum og hvers vegna er mönnum svo mikið kappsmál að halda flokkshestunum í bankaráðunum?
Einu sinni geisaði hér verðbólga. Þá var gott að taka víxil. Menn tóku víxla í bönkum og greiddu þessa víxla á þeim kjörum sem þá buðust. Það skipti í raun og veru nánast engu máli hvaða afborgunardagar voru á þessum víxlum. Það sem mestu máli skipti var að þegar maður loksins greiddi víxilinn upp þá gerði maður það með krónum sem voru orðnar lítils virði eða einskis virði, svona nánast úr rassvasa sínum. Það var afþekkt þá hvað þetta kerfi þjónaði vissum samtökum hérlendis vel. Það er t. d. nokkuð öruggt mál að flokksmálgögnin hefðu aldrei lifað af ef þau hefðu ekki haft aðstöðu í gegnum flokkshestana í bankaráðunum til að fjármagna rekstur sinn með víxlum sem brunnu upp á báli verðbólgunnar.
Nú getur maður spurt sig: Hvernig er staða þessara flokksmálgagna í dag? Hvernig standa stjórnmálaflokkarnir að rekstri sínum og sinna flokksmálgagna í dag þegar þeir ekki lengur hafa þá aðstöðu að reka þá á víxlum, sem brenna upp í báli verðbólgunnar? Það er til ein leið. Hún er afskaplega auðfarin ef þú hefur aðstöðuna, ef þú hefur þá aðstöðu að ráða bönkunum í gegnum bankaráðin. Þessi leið er einfaldlega sú að nota þá fjármuni, sem flokkarnir og flokksmálgögnin hafa yfir að ráða, til þess að kaupa skuldabréf hjá verðbréfasölum úti í bæ og selja þau á nafnverði í bönkunum. (VI: Er eitthvað gert af þessu?) Menn spyrja: Er eitthvað gert af þessu? Það mun, eins og í flestu öðru, vera erfitt að sanna og jafnerfitt að afsanna slík viðskipti. En við vitum að þó nokkur brögð eru að því að bankar kaupi skuldabréf á nafnverði og bankarnir hafa náttúrlega enga aðstöðu til að kanna hvernig þessara bréfa hefur verið aflað. Aftur á móti vitum við það líka að menn hafa mjög misjafnan aðgang að bönkunum í slíkum viðskiptum. Það hafa engir betri aðgang að bönkunum en þeir sem eiga pólitíska fulltrúa í bankaráði. Þess vegna höfum við lagt fram brtt. við þetta frv., m. a. til að koma í veg fyrir að hægt sé að nota bankana í pólitísku yfirskini, hægt sé að stjórna bönkunum beinlínis gegn þeirra eigin hagsmunum fyrir flokkshagsmuni og gegn hagsmunum viðskiptavina þeirra og endanlega þjóðarinnar allrar.
Ég minni á það að nefnt var dæmi í umr. í Nd. um daginn um það hvernig hægt er að þjóna hagsmunum bankanna gegn hagsmunum bankanna sjálfra og gegn hagsmunum eigenda þeirra sem eru þjóðin. Stórfyrirtæki, Hafskip hf., er viðskiptavinur Útvegsbankans. Það er upplýst mál í ársskýrslu þess fyrirtækis að ef eignir þess væru seldar í dag á því verði sem tiltekið er á reikningum fyrirtækisins næmu skuldirnar 200 millj. kr. hærri upphæð en verðgildi eignanna er, þ. e. út af stæðu 200 millj. Viðskrh. var spurður hvernig þetta mætti vera, hvers vegna enginn hefði gripið í taumana. Viðskrh. kom í stól og sagði: Í bókhaldi þessa fyrirtækis koma tryggingar fyrir þessum 200 millj. ekki fram vegna þess að þær eru fengnar í eignum hluthafa.
Nú veit ég ekki nákvæmlega hverjir hluthafar Hafskips eru þó að maður þekki suma eins og hæstv. fjmrh. En manni er spurn: Hversu mikið er hver einstakur hluthafi reiðubúinn til að veðsetja af sínum eignum til þess að standa undir rekstri fyrirtækis sem stendur á jafnmiklum brauðfótum og Hafskip gerir? Mér er til efs að það séu margir reiðubúnir til að veðsetja mikið meira en 1 millj. af sínum eignum til að tryggja lán þessa fyrirtækis. Þar með er verið að segja að það eru 100–200 fjölskyldur á víð og dreif einhvers staðar úti um bæinn sem færu á uppboð ef þetta fyrirtæki væri gert upp. Það er þokkaleg staða það.
Við getum auðvitað sagt okkur það að það yrði aldrei gengið að þessu fólki. Hér yrði gripið til einhverra annarra örþrifaráða til þess að ekki þyrfti að koma til uppboða á eignum þessara einstaklinga, þessara fjölskyldna, ekki þyrfti að selja ofan af þeim húseignir og aðrar eigur þeirra. Sá sem mundi blæða eða borga skaðann væri eigandi þessa banka, þ. e. þjóðin sjálf yrði skattlögð fyrir vikið. Hvernig hún yrði svo skattlögð, það er annað mál. Ríkisstjórnir hafa tvær leiðir til að skattleggja fólk og jafnvel fleiri. Íslensk stjórnvöld hafa aðallega notað tvær leiðir. Það er annars vegar með sköttum, beinum eða óbeinum, og svo þeim hræðilega skatti sem verðbólgan er því að verðbólga er ekkert annað en skattlagning stjórnvalda sem ekki þora lengur að skattleggja þegna sína beint.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að kynna brtt. á þskj. 1351 og byrja þá á 5. lið því að ég tel hann allra mikilvægastan. Þar segir:
„Við ákvæði til bráðabirgða bætist nýr liður, er orðist svo:
Alþingi kýs fimm manna nefnd til þess að annast um að breyta ríkisviðskiptabönkunum í hlutafélagabanka. Skal nefndin ganga frá samþykktum og ákveða hlutafé hvers banka miðað við eignir hans og viðskiptastöðu í samráði við bankaráð, bankaeftirlit og endurskoðendur hvers banka. Breyting ríkisviðskiptabanka í hlutafélagabanka skal eiga sér stað eigi síðar en 1. jan. 1987 og falla þá úr gildi sérákvæði laga um ríkisviðskiptabanka eftir því sem við á.
Nefndin skal bjóða hlutafé bankanna til sölu á frjálsum markaði þegar að loknum stofnfundum þeirra. Enginn einn hluthafi má kaupa meira en 5% hlutafjár. Umboð nefndarinnar til sölu hlutabréfa fellur niður 31. des. 1987. Óseld hlutabréf skulu þá falin í vörslu viðkomandi banka og skulu bankaráð annast sölu þeirra. Viðskrh. fer með atkvæði óseldra hlutabréfa á aðalfundi.“
Þetta er meginatriði máls míns: Ríkið skal ekki eiga banka. Bankar skulu vera hlutafélög í eigu einstaklinga og samtaka þeirra. Eins og ákvæðið gerir ráð fyrir tekur það ákveðinn tíma að koma þessu í kring. Þess vegna hef ég í 4. lið þessa brtt. lagt til að á eftir 9. gr. frv. komi ný grein er hljóði svo:
„Ráðherra er ekki heimilt að skipa alþm. í bankaráð ríkisviðskiptabankanna.“
Þessi grein verður að sjálfsögðu óþörf þegar bankarnir eru ekki lengur ríkisviðskiptabankar. En þangað til tel ég brýna nauðsyn á þessari grein því að ég tel að þau afskipti löggjafarvaldsins af fjármálum í gegnum ríkisviðskiptabankana, sem við höfum búið við undanfarna áratugi, hafi verið íslensku efnahagslífi mjög óholl svo ekki sé meira sagt. Fyrir utan það siðleysi sem ég tel í því felast að brjóta þannig gersamlega 2. gr. stjórnarskrárinnar.
Í 3. tölul. þessara brtt. legg ég til að við 9. gr. bætist ný mgr., 2. mgr., er hljóði svo:
„Viðskrh. skipar fimm menn í bankaráð ríkisviðskiptabanka til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara. Ráðh. skipar formann og varaformann úr hópi þessara manna.“
Margoft hefur verið komið inn á þessi atriði hér í umr. í vetur. Framkvæmdavaldið ber ábyrgð á þeim fyrirtækjum sem ríkisvaldið rekur gagnvart löggjafanum og því skal framkvæmdavaldið bera ábyrgð á þeim starfsmönnum sem þessum fyrirtækjum stjórna. Það er það einfaldlega sem felst í þessari mgr. Löggjafarvaldið ber ekki ábyrgð á fyrirtækjum ríkisins heldur framkvæmdavaldið.
Nú er það þannig að maður gerir sér e. t. v. ekki allt of háar vonir um það við óbreyttar aðstæður að góðar hugmyndir sem þessar hljóti brautargengi. Aftur á móti er í frv., sem frá ríkisstj. er komið, ákveðin heimild í 8. gr. laganna um það að erlendir bankar megi opna hér svokallaðar umboðsskrifstofur. Þetta er leið sem önnur Norðurlönd hafa farið í þeim tilgangi að opna bankaviðskipti við útlönd. Ég hef lagt til að þessi grein breytist. Ég geri það einfaldlega vegna þess að ég held að það væri einhver heppilegasta efnahagsaðgerð á þessu landi í dag að leyfa rekstur erlendra banka til þess að sparifjáreigendur ættu möguleika á að bjarga sparifé sínu undan klóm íslenskra stjórnmálamanna í hendur banka sem ávaxta það eins og heiðarlegir menn. Því hef ég lagt til að þessi grein hljóði svo:
„Ráðherra getur veitt hlutafélagabönkum, sem eiga lögheimili og varnarþing erlendis, leyfi til að starfrækja banka hér á landi. Bönkunum er heimilt að taka við innlánum, veita útlán og stunda verðbréfaviðskipti.
Ákvæði laga um hlutafélög gilda um þá er setja á stofn banka skv. 1. mgr. en að öðru leyti setur ráðh. nánari reglur um starfsemi þeirra að fengnum tillögum bankaeftirlitsins. Ráðherra ákveður gjald fyrir veitingu leyfis til starfrækslu erlendra banka. Tilkynningar, sem senda skal hlutafélagaskrá skv. XVII kafla laga um hlutafélög, skulu einnig sendar bankaeftirlitinu.“
Eins og ég sagði áðan: Þetta er í mínum augum hugsanlegt bjargráð íslenskum sparifjáreigendum, að fá að ávaxta sparifé sitt í erlendum gjaldmiðlum til þess að bjarga þeim undan ásælni og óráðsíu íslenskra stjórnmálamanna.
Í fyrsta lið brtt. á þskj. 1351 flyt ég brtt. sem er í raun og veru mjög tæknilegs eðlis. Hún er sú að um heimili og varnarþing viðskiptabanka fari eftir samþykktum þeirra, þ. e. viðskiptabönkum sé heimilt að ákveða sjálfir hvar þeir hafa varnarþing. Viðskiptabanka er heimilt að starfrækja útibú vegna starfsemi sinnar þar sem bankaráð ákveður og að fullnægðum skilyrðum laga þessara.
Þannig stendur á þessari brtt. að Bandalag jafnaðarmanna samþykkti þegar á fyrsta landsfundi sínum 1983 að stefna skyldi að breytingu á stjórnsýslukerfi Íslands þannig að komið yrði á sem allra fyrst þriðja stjórnsýslustiginu. Hluti af þeirri hugsun, sem að baki þessum hugmyndum liggur, er sú að auka sjálfstæði héraða eða landshluta, sjálfstæði til forræðis í eigin málum. En þetta sjálfstæði verður ekki fengið á meðan bönkum, hvort sem þar er um að ræða hlutafélagabanka eða ríkisviðskiptabanka, er stjórnað héðan frá Reykjavík. Það er sjálfsögð og eðlileg krafa þeirra landsmanna sem vilja aukið sjálfstæði til stjórnar í eigin málum að bankar, sem starfa á þeim svæðum, eigi heimili og varnarþing þar. Þannig verða þeir að bönkum fyrir þau landssvæði sem um ræðir hverju sinni.
Virðulegi forseti. Á þskj. 1353 hef ég flutt brtt. sem ég dreg til baka til 3. umr. en vil nota þetta tækifæri til að kynna hana. Hún er sú að á eftir 9. gr. komi ný grein er orðist svo: „Alþm. eru ekki kjörgengir í bankaráð ríkisviðskiptabankanna.“ Vil ég þar með fyrst sjá hverja afgreiðslu þær brtt., sem ég hef þegar kynnt á þskj. 1351, fá. En fari svo að 3. og 4. liður brtt. á því þskj. fáist ekki samþykktir mun ég flytja brtt. á þskj. 1353 við 3. umr.