20.06.1985
Efri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7042 í B-deild Alþingistíðinda. (6451)

423. mál, viðskiptabankar

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég hef skrifað undir nál. meiri hl. í þessu máli með fyrirvara. Sá fyrirvari er fólginn í því að ég flyt brtt. við málið á þskj. 1399. Þessar brtt. eru taldar upp á því þskj. í átta liðum og ég tel ekki sérstaka ástæðu til þess nú á þessari stundu að lesa þær allar sérstaklega upp. Þær voru fluttar í Nd. og náðu þar að vísu ekki samþykki en eru fluttar hér aftur. Ástæðan til þess að ég sé ekki að raunhæft sé að setja á langa tölu um þessar tillögur er sú að hv. Ed. Alþingis hefur verið boðið upp á það í þessu máli að hafa u. þ. b. sólarhring til að tjá sig um málið og skoða það. Hér er um svo flókið og fjölþætt mál að ræða að það er í rauninni enginn vegur að fjh.- og viðskn. þessarar deildar geti á þeim tíma fjallað um málið af neinni skynsemi.

Þetta mál er búið að vera lengi í meðförum í Nd. og hjá hv. fjh.- og viðskn. þeirrar deildar. Við stöndum nú enn einu sinni frammi fyrir þeirri staðreynd að við hér í Ed. erum sett upp við vegg. Gert hefur verið samkomulag sem við verður staðið um að ljúka þingstörfum á tilsettum tíma en það þýðir það í raun að við getum ekki fjallað um þetta frv. eins og vert væri.

Ég hef lýst því hér að ég flyt brtt. á þskj. 1399 við þetta frv. til l. um viðskiptabanka sem er vissulega mikillar athugunar vert. En mér þótti það hins vegar, virðulegi forseti, heldur hlálegt að hlusta á það í Ríkisútvarpinu í kvöld að formaður Sjálfstfl. skyldi tala um þetta frv. í útvarpið við landslýð eins og það væri nú þegar orðið að lögum. Það þykir mér ámælisvert. Þetta frv. er enn ekki orðið að lögum. Ed. á eftir að fjalla um það. Og um þetta frv. var rætt við formann Alþb. sem telur sig sjálfsagt vita allra manna mest um bankamál af núlifandi Íslendingum þó að ég leyfi mér að draga það í efa. En um þetta frv. var rætt í fréttatíma Ríkisútvarpsins í kvöld eins og það væri orðið að lögum. Þetta frv. er hér enn til umr. í Ed. og er ekki orðið að lögum. Ég vil mótmæla þessum vinnubrögðum.

Vissulega er margt í þessu frv. sem horfir til bóta og í frjálsræðisátt. Ég get að vissu leyti tekið undir það sem formaður Sjálfstfl. sagði í viðtali við Ríkisútvarpið. Hann sagði réttilega: Sósíaldemókratar á Norðurlöndum eru búnir að beita sér fyrir úrbótum í bankamálum í líkingu við þetta. Það er út af fyrir sig mjög ánægjulegt að Sjálfstfl. á Íslandi skuli nú feta í fótspor sósíaldemókrata á Norðurlöndum í þessum efnum. En ég verð hins vegar að segja það aftur og enn að mér finnst það ákaflega óviðfelldið þegar formaður Sjálfstfl., sem hefur ekki talað mikið í þinginu í vetur og hefur sennilega talað meira í útvarpið í kvöld en hann hefur talað í þinginu í vetur, skuli tala um þetta frv. eins og það sé orðið að lögum þegar Ed. á eftir að fjalla um málið. Ég er alveg viss um að embættismenn þingsins, forsetar þingsins, geta tekið undir þessa gagnrýni vegna þess að mér finnst það ámælisvert þegar flokksformenn koma í fjölmiðla sem öll þjóðin hlustar á og tala um mál, sem er að hálfu afgreitt í þinginu, eins og það sé þegar orðið að lögum.

Ég ætla ekki, virðulegi forseti, að fara að rekja þessar brtt. í smáatriðum. Þær liggja hér fyrir á þskj. 1399. Það eru að vísu ýmis mál í sambandi við bankana og starfsemi þeirra sem mætti ræða nánar um og sem ástæða er til að athuga frekar. En staðreyndin er sú að til þess er næsta lítið ráðrúm hér og nú. Það væri t. d. sérstök ástæða til að tala um hvernig bankarnir þjóna sínum viðskiptavinum sem eru með sparisjóðsávísanareikninga og verður það á að misreikna sig um kannske 1–2 kr. Þeir hafa kannske verið viðskiptamenn bankanna í 20–30 ár og látið leggja öll sín laun inn á reikning hjá þessum bönkum um hver einustu mánaðamót í 20 ár. Svo verður þessum aðilum það á einhvern tíma að misreikna sig um 2 kr. og hvað gerist þá? Þá sendir bankinn þeim sektarmiða og þeir eru útmálaðir sem ávísanafalsarar og eiga sér hvergi viðreisnar von í þeim efnum. En mér er nú tjáð og kom það raunar fram á fundi fjh.- og viðskn. í morgun að þetta muni vera að breytast hjá a. m. k. einstökum innlánastofnunum hér á höfuðborgarsvæðinu og ber því að fagna.

Ég kom hér inn áðan þegar hv. 8. þm. Reykv. var að flytja sína ræðu. Hann var að tala hér um ákveðið fyrirtæki, Hafskip, og gerðist þar býsna stórorður. Ég heyrði ekki betur en að hann væri að éta upp úr vikublaði sem hér er gefið út og heitir Helgarpósturinn og hefur verið að skrifa um þessi mál með býsna einkennilegum hætti. Þar hefur lítið verið staðfest af hæpnum fullyrðingum. Ég skil satt að segja ekki hvað slíkar fullyrðingar og umræður eiga að þýða þegar Alþingi Íslendinga er að ræða um viðskiptabanka. Mér þótti þetta næsta undarlegt tal og næsta undarleg ræða.

En ég ætla ekki, virðulegi forseti, að hafa þessi orð öllu fleiri. Ég hef þegar gert grein fyrir þeim brtt. sem ég mun greiða atkvæði með hér og ég hef flutt við þetta frv. Ég hef skrifað undir nál. meiri hl. með fyrirvara. Ég tel að margt í þessu frv. sé til bóta en að það þurfi vissra breytinga við. Ég held að ekki sé ástæða til að fjölyrða um það frekar.