20.06.1985
Efri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7047 í B-deild Alþingistíðinda. (6458)

423. mál, viðskiptabankar

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Ég kann því betur, vegna þess sem ég ætla að segja hér, að hv. 8. þm. Reykv. eigi kost á að segja álit sitt á ákveðinni brtt. sem mér datt í hug undir umr. áðan. Ég ætla ekki að blanda mér í málefnalegar umr. þeirra hv. 5. landsk. þm. og hv. 8. þm. Reykv. Ég veit að þær hefðu glatt hjarta hv. þm. Jóns Baldvins Hannibalssonar sem er orðinn allra manna flinkastur í að leggja saman fylgi og prósentur þessara tveggja bræðraflokka, eins og hann gjarnan orðar það. Það er eiginlega synd að hann skuli ekki vera hér til að hlýða á þá ástleitni sem hér hefur farið fram milli þessara tveggja bræðraflokka. Hins vegar kem ég hér upp vegna þess að ég fór að lesa betur yfir brtt. einmitt um frv. til l. um viðskiptabanka frá hv. þm. Stefáni Benediktssyni. Hann ræddi hér mjög og kannske réttilega um ill áhrif stjórnmálaflokka í bankaráðum. Með leyfi virðulegs forseta segir svo í 3. brtt. hv. þm. Stefáns Benediktssonar:

„Viðskrh. skipar fimm menn í bankaráð ríkisviðskiptabanka til fjögurra ára í senn og jafnmarga til vara. Ráðh. skipar formann og varaformann úr hópi þessara manna.“

Ég hefði viljað í samræmi við það sem hv. þm. sagði hér áðan um þessi slæmu áhrif stjórnmálalaflokkanna í bankaráðum að við þetta væri bætt setningunni: „Skulu þeir óflokksbundnir og mega ekki taka þátt í stjórnmálahreyfingum.“