20.06.1985
Efri deild: 107. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7049 í B-deild Alþingistíðinda. (6464)
457. mál, Framkvæmdasjóður Íslands
Frsm. 3. minni hl. (Sigríður Dúna Kristmundsdóttir):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. 3. minni hl. hv. fjh.og viðskn. sem er að finna á þskj. 1400. En eins og þar kemur fram leggur 3. minni hl. n. til að þessu frv. verði vísað til ríkisstj. og vísar til efnisraka sem er að finna í nál. 3. minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til laga um Byggðastofnun.
Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka það sem ég hef þegar sagt um þau þrjú mál sem hér eru á ferðinni saman. Mér þykir augljóst vera að þau hafi ekki þær breytingar í för með sér sem æskilegar væru og að hér þurfi enn að gæta betur að og fjalla nánar um þessi mál. Það er meginástæða þess að ég legg til að þessu frv.. eins og hinum tveimur, verði vísað til ríkisstj.