20.06.1985
Neðri deild: 108. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7088 í B-deild Alþingistíðinda. (6486)
503. mál, getraunir Öryrkjabandalags Íslands
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Í stuttri ræðu minni áðan lagði ég áherslu á að farsælast væri að samkomulag gæti orðið með þessum tveimur mikilvægu hreyfingum, íþróttahreyfingunni og Öryrkjabandalaginu, um sameiginlegan rekstur getrauna. Hv. þm. Ellert Schram fjallaði nokkuð um þessi orð mín og lýsti einnig vilja til þess að stuðla að slíku samkomulagi og óskaði eftir því að ég kæmi nánar inn á þetta mál. Ég er reiðubúinn að lýsa því yfir að ég mun beita mér fyrir því að strax í sumar, strax þegar þessu þingi lýkur, verði rætt við hreyfingarnar báðar og leitað eftir samkomulagi um rekstur getrauna. Ég vil jafnframt lýsa því yfir að takist ekki slíkt samkomulag mun ríkisstj. leggja fram frv. eins og það sem hér hefur verið til umr. strax og þing kemur saman í haust.