20.06.1985
Neðri deild: 108. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7088 í B-deild Alþingistíðinda. (6488)
Starfslok neðri deildar
Forseti (Ingvar Gíslason):
Það er ljóst að þetta verður síðasti fundur þessarar hv. þd. og komið að því að ljúka fundinum, en áður en það verður vil ég leyfa mér að þakka hv. þdm. fyrir ágætt samstarf við mig á þessu þingi sem nú er að ljúka. Þetta hefur vissulega verið langt þing, óvenjulega langt þing, lengra en kannske öll önnur, og einnig hefur þetta verið mjög strangt þing, en eigi að síður vona ég að hv. þdm. eigi ýmsar góðar minningar um þetta þing eins og ég á persónulega þó að oft hafi hvesst á köflum, og reyndar er ekki við öðru að búast en svo geti orðið á stað þar sem við störfum, þar sem við vinnum.
Ég þakka varaforsetum fyrir þá ómetanlegu aðstoð sem þeir hafa veitt mér í störfum og einnig skrifurum sem hér gegna mjög mikilvægu starfi, trúnaðarstarfi hér í hv. þd., og er mjög mikilvægt að þeirra störf séu vel af hendi leyst, og ég vil þakka þeim góða aðstoð við mig um að halda góðri reglu í sambandi við fundarstjórn, alla fundarreglu.
Ég leyfi mér einnig að þakka skrifstofustjóra þingsins og öllu starfsliði fyrir þá ágætu samvinnu og það góða samstarf sem verið hefur við skrifstofustjóra og starfslið og þau góðu störf sem starfsliðið allt hefur innt af hendi fyrir þessa þingdeild og loks óska ég hv. þdm. og fjölskyldum þeirra allra heilla og velfarnaðar og þakka þeim samstarf og ágæta samvinnu á þessu þingi.