21.06.1985
Efri deild: 108. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7091 í B-deild Alþingistíðinda. (6511)
210. mál, selveiðar við Ísland
Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Eins og kom fram í ræðu hæstv. sjútvrh. kemur þetta mál til umr. í þessari deild á síðustu stundu. Það er búið að vera til athugunar og skoðunar í Nd. í allan vetur, en ætlast er til þess að það verði afgreitt hér á síðustu augnablikum sem Ed. hefur til umráða til að afgreiða mál.
Ég tek undir að þetta er mikilsvert mál og það snertir gildan þátt í atvinnulífi okkar, bæði í landbúnaði og sjávarútvegi. Það hefur verið mikil umræða um að selurinn væri hinn mesti meinvaldur hvað snertir fjölgun hringorms í fiski. Það hefur jafnvel verið kveðið svo fast að orði að hann væri stærsta orsökin að versnandi stöðu sjávarútvegs á síðustu og verstu tímum. Ég vil undirstrika að ég tel að þar séu viss vandamál á ferðinni, en það sé rangt að gera eins mikið úr því og gert hefur verið. Þetta er vandamál sem við höfum búið við á undanförnum árum, kannske í nokkuð auknum mæli á síðustu árum vegna þess að selveiði hefur ekki verið stunduð sem hlunnindabúskapur eins og áður, en þrátt fyrir það held ég að gert hafi verið mikið meira úr þessu máli en efni hafa staðið til.
Ég tel að þó að málin þróist eins og raun ber vitni sé nauðsynlegt að koma þessu máli frá og samþykkja það hér og mun standa að samþykkt þess, en tel mjög nauðsynlegt að með sóknina í selastofninn verði farið af hinni mestu varúð og á þeim svæðum þar sem ákveðnar friðunarreglur hafa gilt verði farið að á þann máta að það breyti ekki þeim reglum sem í gildi hafa verið fram á þennan dag þó að frv., lögin sem í gildi koma, geri ráð fyrir að þar verði hægt að fara nokkuð víðar um en áður hafa verið reglur um.
Eins og ég hef reyndar sagt áður held ég að nauðsynlegt sé að koma á ákveðnum lögum um selveiðar og breytingu frá því sem verið hefur hingað til og mun ég standa að samþykkt þessa frv. þó að ég átelji að þetta mál hafi ekki gengið betur fram en raun ber vitni um og sé komið hér til umr. á síðustu stundu og við stöndum raunverulega frammi fyrir því að segja við því já eða nei. Þeir sem gera sér grein fyrir þeim stóra vanda sem sjávarútvegurinn stendur frammi fyrir í sambandi við hringorminn, þann vonda orm, vita að það er ekki um annað að gera á síðustu mínútunum sem við höfum til vinnu í hv. Ed. en að samþykkja frv. þó nauðsynlegt hefði verið að skoða málið mikið betur en við höfum aðstöðu til hér.