21.06.1985
Efri deild: 108. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7092 í B-deild Alþingistíðinda. (6512)
210. mál, selveiðar við Ísland
Egill Jónsson:
Herra forseti. Það vekur að sjálfsögðu nokkra undrun að mál sem búið er að vera á dagskrá í Nd. Alþingis frá því um miðjan vetur skuli vera komið á dagskrá í Ed. Alþingis á síðasta degi þessa þinghalds. Mér er efst í huga að spyrja hvort mönnum sé nú full alvara - það væri kannske betra að orða það eins og hv. 2. þm. Austurl. hefur komist hér að orði: hvort mönnum sé orðið sjálfrátt.
Ég held að þetta frv. sem slíkt, og hef ég þó ekki farið alveg nýlega yfir það, muni ekki marka nein sérstök tímamót í þessum efnum, en hins vegar er eðlilegt að minna á hver afstaða landbúnaðarins er varðandi þetta frv. M. a. má minna á í þessum efnum afgreiðslu síðasta Búnaðarþings og ályktun þess um þetta mál.
Ég læt mér ekki detta til hugar annað en að þetta frv. fái málefnalega umfjöllun hér á Alþingi og að sjálfsögðu er búið að gera hér till. um að málinu verði vísað til nefndar. (Gripið fram í: Vísað til sjútvn.) Já, ég hef ekkert við það að athuga þó að frv. fari þá leið. En þá gefst hins vegar betra næði og betra tóm til þess að fjalla um þetta mál. Þessi vinnubrögð eru óforsvaranleg. Ég mótmæli þeim. Frv. verður að fá eðlilega umfjöllun hér á Alþingi.