21.06.1985
Efri deild: 109. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 7094 í B-deild Alþingistíðinda. (6521)

210. mál, selveiðar við Ísland

Björn Dagbjartsson:

Virðulegi forseti. Forseti tók mál út af dagskrá áðan án þess að vísa því til nefndar. Mér láðist að spyrja að því þá og þegar það var gert, en vil ítreka það, hvort það hafi verið með vilja tekið út af dagskrá án þess að vísa því til nefndar.