13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í B-deild Alþingistíðinda. (656)
71. mál, heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar
Helgi Seljan:
Herra forseti. Það er rétt, sem hv. 3. þm. Vestf. sagði, að í þessari ágætu nefnd á sæti hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson. Ég er í þessari nefnd einnig, hv. þm. Kristín Halldórsdóttir er í þeirri nefnd og, vel að merkja, formaður þingflokks hv. þm. Karvels Pálmasonar, Eiður Guðnason, sem ég efa ekki að gefi þingflokknum daglegar skýrslur um það hvernig þessu nefndarstarfi líður. Hv. 3. þm. Vestf. þarf því ekki að leita lengra en þangað til að fá svar við fsp. um það virka nefndarstarf sem þar hefur farið fram. (KP: Er það virkt?)
Til að skýra það orð innan gæsalappa vildi ég segja að þessi nefnd hefur farið hægt og gætilega af stað undir traustri forustu hv. fyrrv. þm. Lárusar Jónssonar og hún hefur haldið fundi sem ég hygg að sé hægt að telja í — ja, kannske ekki í mínútum, en líklega klukkutímum. Það var ákveðið á síðasta fundi hennar, sem stóð þennan venjulega hálftíma eða klukkutíma, að nú ætti að fara að komast skriður á nefndarstarfið og það yrði reynt að flýta í einhverju tillögum frá nefndinni. (KP: Og er langt í það?)
Hins ber að geta, hv. þm., að við höfum haft nokkurt samstarf við byggðadeild Framkvæmdastofnunar og fáum þaðan glöggar upplýsingar, eins og er að vænta frá þeirri ágætu stofnun, um ástand þessara mála og horfur í þeim málum. Ég vænti þess að það samstarf, ásamt samstarfi við landshlutasamtökin, sem auðvitað skipta hér langmestu máli, skili einhverjum árangri. En miðað við þetta gætilega nefndarstarf til þessa er ekki að vænta þess að árangurinn skili sér mjög fljótt.