13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í B-deild Alþingistíðinda. (666)

91. mál, launakjör kvenna og karla

Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. svör hans. Ég er sama sinnis og hann, ég tel að þessi undirbúningur hafi tekið nokkuð langan tíma, með tilliti til þess að hann er ekki kominn lengra á veg en hæstv. forsrh. upplýsir.

Þjóðhagsstofnun leggur að vísu til þarna ákveðnar leiðir, hvernig vinna eigi að þessari könnun, en telur sig þurfa einhverjar vikur í viðbót til að leggja endanlega fyrir forsrn. hvernig beri að standa að þessari könnun. Það mikilvægasta í þessu er að mínu mati að forsrh. hefur, með því sem hann hefur hér sagt og sem hann sagði í mars s.l., lýst því yfir að hann sé tilbúinn að standa fyrir þessari könnun. Ég lít því svo á að þessari könnun verði hrundið af stað. Og ég tel hana raunar forsendu fyrir því að hægt sé að leita raunhæfra leiða til að bæta kjör kvenna á vinnumarkaðnum. Þess vegna fagna ég þeirri yfirlýsingu forsrh. að þessari könnun verði hrundið af stað innan skamms og ekki síður því, að hæstv. forsrh. mun beita sér fyrir því að fjárveiting fáist til að standa straum af könnuninni.

Ég vil spyrja hæstv. forsrh., ef það liggur nú fyrir kannske innan fárra vikna hvernig standa eigi að þessari könnun, hvort vænta megi þá þess að hann beiti sér fyrir því núna við afgreiðslu fjárlaga að fjármagn fáist til að gera þessa könnun. Það er að sjálfsögðu forsenda þess að hægt sé að fara af stað með hana.