13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 960 í B-deild Alþingistíðinda. (669)
96. mál, nám á háskólastigi á Akureyri
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Hinn 27. maí 1982 skipaði þáverandi menntmrh., Ingvar Gíslason, nefnd til þess að gera tillögur um hvernig vinna megi að því að efla Akureyri sem miðstöð mennta og vísinda utan höfuðborgarinnar. Skyldi í því sambandi höfð í huga margs konar menningarstarfsemi, en sérstaklega var nefndinni ætlað að kanna hverjir möguleikar væru á því að taka upp kennslu á háskólastigi á Akureyri.
Í nefndina voru skipaðir þeir Birgir Thorlacius, þáverandi ráðuneytisstjóri, formaður, dr. Guðmundur Magnússon háskólarektor og Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri.
Nefndin skilaði ítarlegri álitsgerð í maímánuði s.l. eins og hv. fyrirspyrjandi gat um. Þar er lagt til að kennsla á háskólastigi verði hafin á Akureyri á vegum Háskóla Íslands í þessum greinum:
1. Gagnavinnslu eða tölvugreinum, eins til tveggja ára nám.
2. Viðskiptafræðum, fyrrihlutanám.
3. Greinum er nýtast megi sem áfangi til BA-prófs, t.d. í tungumálum, uppeldisfræði, m.a. til kennsluréttinda, og fjölmiðlun.
4. Verkfræði- og raunvísindagreinum, námsefni fyrsta árs, er ekki krefst aðstöðu til tilraunastarfsemi umfram það sem fyrir er, og e.t.v. hluti af námi í matvælafræði.
5. Í nokkrum klínískum greinum læknisfræði og verkþjálfun í hjúkrunarfræði og sjúkraþjálfun. Jafnframt verði stofnað til endurmenntunar í ýmsum greinum, t.d. fyrir kennara, svo og frjáls háskólanáms, þ.e. kennslu með aðstoð sjónvarps og útvarps frá Reykjavík og Akureyri, er nýtist öllum landsmönnum. Að því er varðar annað nám á háskólastigi telur nefndin að unnt sé að stofna til tónmenntanáms, þ.e. kennaranáms við Tónlistarskólann á Akureyri í samvinnu við aðrar skólastofnanir, og bendir á að listnám, kennaranám, hönnun þurfi að stórauka, einkum í tengslum við iðnframleiðslu.
Loks telur nefndin að halda ætti fræðilega fyrirlestra á Akureyri á vegum Háskóla Íslands og annarra skóla og rannsóknastofnana. Á sviði rannsókna telur nefndin eðlilegt að efla rannsóknastarfsemi sem tengist kennslunni, vinnu við rannsóknaverkefni frá rannsóknastofnunum með útibú á Akureyri, svo og að sinna sérstökum verkefnum, t.d. í náttúruvísindum. Loks nefnir hún þjóðháttarannsóknir í tengslum við Þjóðminjasafn Íslands.
Í samræmi við erindisbréf sitt gerði nefndin einnig tillögur er varða annað menningarstarf, en þær verða ekki raktar hér að neinu leyti nema að það skal nefnt að tillögurnar eru til umsagnar hjá þeim stofnunum sem koma þar við sögu.
Í tillögum sínum um háskólakennslu á Akureyri, sem ég hygg að sé það atriði sem menn á Akureyri leggja mesta áherslu á, leggur nefndin áherslu á að sú starfsemi verði á vegum Háskóla Íslands. Menntmrn. hefur því talið eðlilegt að tillögurnar komi til athugunar í tengslum við skýrslu þá sem svokölluð þróunarnefnd á vegum háskólaráðs lagði fram í ágústmánuði s.l., en ráðgert er að sú skýrsla verði höfð til hliðsjónar við vinnu að stefnumörkun um þróun Háskóla Íslands næstu árin.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun að svo komnu máli um að kennsla á háskólastigi verði hafin á Akureyri á næsta ári, en þó getur komið til þess. Í álitsgerð nefndarinnar segir að lausleg kostnaðaráætlun bendi til að kostnaður við framkvæmd þeirra tillöguliða sem lúta að tveggja ára námi í gagnavinnslu og fyrrihlutanámi í viðskiptafræðum yrði um 7 millj. á verðlagi fjárlaga þessa árs, en kostnaður við hvert þriggja eininga námskeið í öðrum greinum yrði 50–100 þús. kr. Í fjárlagafrv. því sem lagt hefur verið fram fyrir 1985 er ekki gert ráð fyrir sérstökum fjárveitingum í þessu skyni.
Að lokum skal tekið fram að ég tel tillögur nefndarinnar allrar athygli verðar og sjálfsagt að þeim verði gaumur gefinn við undirbúning ákvarðana um starfsemi Háskóla Íslands á næstu árum og að þær verði athugaðar í sambandi við þróunarskýrslu Háskólans og áætlun um framkvæmd mála á grundvelli hennar.
Ég tel að það geti vissulega orðið mjög til góðs að tekin verði upp á Akureyri kennsla í vissum greinum, sem með hægu móti gæti farið fram annars staðar en nákvæmlega í Háskóla Íslands, svo sem t.d. á byrjunarstigum í námi í tungumálum og fleiri greinum. Mér er það ljóst að slík framkvæmd mála gæti komið til góða ekki síst mörgum konum á Akureyri, í kjördæmi hv. fyrirspyrjanda, en ég hygg að einmitt slík tilhögum gæti e.t.v. ráðið úrslitum um það hvort þær hæfu háskólanám eða ekki.