13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í B-deild Alþingistíðinda. (671)

108. mál, skipti eða sala aflakvóta

Fyrirspyrjandi (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Ég leyfi mér að beina eftirfarandi fsp. til hæstv. sjútvrh. um skipti eða sölu aflakvóta milli skipa:

„1. Hversu mikil brögð eru að kvótaskiptum, sbr. 18. gr. reglugerðar um stjórn botnfiskveiða 1984:

a. milli skipa frá sömu verstöð,

b. milli verstöðva og

c. að öðru leyti, sbr. lokamálsgr. 18. gr., að fengnu samþykki sjútvrn. og umsögn sveitarstjórna og sjómannafélaga í viðkomandi stöð?

2. a. Er rn. kunnugt um viðskipti með aflakvóta milli útgerða?

b. Hefur rn. heimilað slík viðskipti, sbr. ákvæði í reglugerð?

3. Ef svo er, getur rn. upplýst:

a. á hvaða verði tonnið af þorski gengur í slíkum viðskiptum?

b. hversu mikið aflamagn hefur þannig gengið kaupum og sölum?

c. Hver er hlutur áhafna þeirra skipa, sem selt hafa hluta af aflakvóta sínum, eða kemur hagnaður eingöngu í hlut útgerðarinnar?“

Hér er verið að spyrja grundvallarspurninga um útfærslu á kvótakerfi. Hæstv. ráðh. f.h. ríkisstj. gefur út ávísanir á þessi verðmæti sem hingað til hafa verið ótakmörkuð og frjáls og ekki sætt markaðsverði. Spurning er: Er þessum ávísunum beint til útgerðaraðilanna eingöngu? Eru þeir eigendur fiskistofnananna eða eru sjómennirnir, sem draga þennan afla um borð, hluthafar í þessari þjóðareign?

„4. Ef rn. er, á þessu stigi málsins, ókunnugt um slík kvótaskipti mun það beita sér fyrir rannsókn málsins?“