15.10.1984
Neðri deild: 3. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í B-deild Alþingistíðinda. (68)

Um þingsköp

Guðrún Helgadóttir:

Herra forseti. Ég vil benda hér á mjög óvenjulega fundarstjórn og á erfitt með að sætta mig við hana. Hér er hv. fyrirspyrjanda gefið orðið án þess að hún hafi um það beðið, en aðrir þeir þm. sem beðið hafa um orðið fá það ekki að því er virðist.

Nú kann vel að vera að það sé farsælast að þessari vægast sagt kvalafullu umr. ljúki og ekki ætla ég að æsa til neins óþægilegs framhalds á henni. Hins vegar ætlaði ég að ræða nokkur atriði, sem ég tel óhjákvæmilegt að benda á, sem fram komu í máli fjmrh. (Forseti: Um þingsköp.) Ég er að ræða um þingsköp, herra forseti.

Ríkisstj. verður ekki bjargað, herra forseti, frá þessum vandræðum. Það er alveg ástæðulaust að leggja sig svo mjög fram um það. Þm. hljóta að mega gera hér aths. við mál er varða undirstöðu menntunar og menningar í landinu, svo sem eins og þegar hæstv. fjmrh. talar um að hann muni láta rannsaka hvernig menn fari til mennta, hvernig kennarar ræki skyldu sína og annað þessu líkt. (Forseti: Ég vil biðja hv. þm. að ræða um þingsköp.) Forseti mun ekki reka mig héðan úr ræðustól, ég er að tala um þingsköp. (Forseti: Hv. þm. er á mælendaskrá og mun fá orðið um þau efnisatriði sem hér hafa verið til umr.) Það gleður mig að hæstv. forseti hefur þá skipt um skoðun. Sé svo að ég fái orðið tel ég ástæðulaust að halda þessari ræðu lengur áfram. Ég krefst þess þá að fá að taka til máls hér á eftir.