13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 970 í B-deild Alþingistíðinda. (682)
110. mál, uppsögn starfs af hálfu atvinnurekenda
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég svara þessari fyrirspurn um fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar um uppsögn starfs af hálfu atvinnurekenda. Það svar sem ég get gefið er þess eðlis að ég vil hafa að því svolítinn formála.
Meginregla íslensks réttar er og hefur verið sú, að vinnuveitandi getur sagt upp starfsmanni sínum án þess að hann verði krafinn skýringa á ástæðum. Vinnuveitandinn þarf einungis að virða lög og samningsbundinn uppsagnarfrest gagnvart starfsmanninum. Frá þessari meginreglu eru vissar undantekningar, sem varða suma opinbera starfsmenn, og auk þess njóta trúnaðarmenn vissra réttinda samkvæmt lögum og/eða kjarasamningum. Þá hvílir jafnframt tilkynningarskylda til vinnumálaskrifstofu félmrn. og til viðkomandi verkalýðsfélags á atvinnurekanda, sem ráðgerir samdrátt eða aðrar varanlegar breytingar í rekstri, sem leiða til uppsagnar a.m.k. fjögurra starfsmanna, sbr. 55. gr. laga nr. 13/1979.
Ef Ísland staðfestir samþykktina tekst það jafnframt á hendur þá þjóðréttarlegu skuldbindingu að setja lög sem tryggja að launþegar njóti þeirra réttinda með uppsögn af hálfu atvinnurekenda sem samþykktin ákveður sbr. 1. gr. Samkvæmt 2. gr. samþykktarinnar skal gildissvið slíkra laga ná til alls launafólks og allra greina atvinnulífsins, en þó er heimilt að undanskilja tiltekin afmörkuð svið sem aðallega varða tímabundnar ráðningar og ráðningar til reynslu eða þjálfunar. Það er því ljóst að samþykktin á að tryggja að sú skipan við uppsögn af hálfu atvinnurekenda sem þar er ákveðin skuli vera meginregla í vinnurétti þess ríkis sem staðfestir samþykktina.
Í 4. gr. samþykktarinnar kemur fram aðalefni hennar. Þar er ákveðið að ekki sé heimilt að segja upp starfsmanni nema til þess sé gild ástæða. Gildar ástæður geta verið tvenns konar:
a) Hæfni eða hegðun viðkomandi starfsmanns.
b) Rekstrarlegar ástæður hjá viðkomandi vinnuveitanda. Aðrar ástæður heimila vinnuveitanda ekki uppsögn.
Í 5. og 6. gr. eru talin upp atriði sem ekki teljast gildar ástæður til uppsagnar. Sú upptalning er ekki tæmandi, heldur sett fram í leiðbeiningar- og dæmaskyni.
Í 7. gr. er lögð sú skylda á atvinnurekandann að gefa starfsmanni kost á því að tjá sig um aðfinnslur atvinnurekandans varðandi hæfni eða hegðun starfsmannsins ef slíkt á að vera gild ástæða uppsagnarinnar.
Ákvæði 8.–10. gr. varða rétt starfsmannsins til þess að bera lögmæti uppsagnar undir úrskurðaraðila. í því sambandi er m.a. gert ráð fyrir að lögfestar verði sérstakar réttarfarsreglur starfsmönnum í hag til þess að koma í veg fyrir að sönnunarbyrðin um það hvort uppsögn teljist lögmæt eða ekki hvíli eingöngu á honum.
11. gr. samþykktarinnar um uppsagnarfrest virðist samrýmast 1. gr. laga nr. 19/1979 og 12. gr. stangast ekki á við gildandi reglur.
Í 13. gr. er skylda lögð á atvinnurekanda, sem hefur í hyggju uppsagnir af rekstrarlegum ástæðum, að hann skuli tilkynna þá fyrirætlan trúnaðarmönnum viðkomandi starfsmanna. Jafnframt skal hann taka þátt í viðræðum við fulltrúa starfsmanna um hvernig megi draga úr þörfinni fyrir uppsagnirnar. Heimilt er viðkomandi ríki, sem staðfestir samþykktina, að binda framangreindar tilkynningar og viðræðuskyldu við tilvik þar sem a.m.k. tiltekinn fjöldi starfsmanna getur átt von á uppsögnum.
14. gr. samþykktarinnar leggur ríka skyldu á vinnuveitanda um að tilkynna fyrirhugaðar uppsagnir af rekstrarlegum ástæðum til stjórnvalda, eins og nú er gert í 55. gr. laga nr. 13/1979. Skyldan samkvæmt samþykktinni virðist þó víðtækari.
Í 15.–22. gr. er fjallað um full gildingu samþykktarinnar og atriði henni tengd.
Samþykktin felur í sér grundvallarbreytingu á réttarstöðu vinnuveitanda og starfsmanns ef vinnuveitandi ætlar sér að segja starfsmanni upp. Það er meginregla íslensks vinnuréttar að vinnuveitandi getur sagt starfsmanni upp án þess að færa fyrir því nokkur rök. Þessi regla sætir þó undantekningu, sbr. 1. tölulið hér að framan. Vinnuveitandinn þarf einungis að tilkynna uppsögnina með ákveðnum hætti og virða reglur laga og kjarasamninga um uppsagnarfrest. Samþykktin snýr þessari meginreglu við. Samkvæmt henni er meginreglan sú að ekki er heimilt að segja starfsmanni upp störfum nema til þess séu gildar ástæður. Gildir þar einu hversu uppsagnarfrestur er langur. Í samþykktinni er nánar fjallað um hvaða ástæður teljast gildar og jafnframt nefnt í leiðbeiningar- og dæmaskyni hvaða ástæður teljist ekki gildar. Hvar mörkin milli gildrar ástæðu og ógildrar yrðu dregin er ómögulegt að fullyrða um, svo tæmandi sé, en ljóst er að slík mörk yrðu dregin smám saman í gegnum úrlausnir dómstóla. Sérstök ástæða er til að ætla að 1. tölul. 6. gr. geti gefið tilefni til álitamála.
Annað sem felst í samþykktinni er að setja þurfi sérstakar réttarfarsreglur um sönnunarbyrði í málum sem varða gildi uppsagna. Samkvæmt íslenskum réttarfarsreglum er meginreglan sú að sá sem vill byggja rétt sinn á staðhæfingum þarf að sanna réttmæti hennar. samþykktin snýr þessu við. Samkvæmt henni þyrfti atvinnurekandinn að sanna að um gilda uppsögn væri að ræða ef til ágreinings kæmi.
Í þriðja lagi skyldar samþykktin vinnuveitanda til þess að tilkynna fulltrúum starfsmanna fyrir fram rekstrarlegar breytingar, sem kynnu að leiða til fækkunar starfsfólks, og jafnframt til þess að gefa fulltrúum starfsfólksins kost á viðræðum með það að markmiði að draga úr þörfinni fyrir fækkun starfsmanna. Eigi slíkar viðræður að vera annað en formið eitt virðist augljóst að vinnuveitandinn yrði að gefa viðmælendum sínum kost á því að kynna sér öll gögn varðandi fyrirtækið sem máli kunna að skipta varðandi ákvörðun um starfsmannafjölda. Hér gæti verið um mjög viðkvæmar upplýsingar að ræða innan fyrirtækjanna sem fyrir fram má reikna með að stjórnendur séu ófúsir að láta út fyrir eigin raðir.
Í fjórða lagi felur samþykktin í sér skyldu fyrir vinnuveitanda að tilkynna stjórnvöldum fyrirhugaðar rekstrarbreytingar sem leiða kynnu til fækkunar starfsfólks. Yrði sú skylda víðtækari en núgildandi íslenskar lagareglur um sama efni.
Niðurstaða mín er því þessi: Staðfesting samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 158 kallar á lagabreytingar sem ég tel nauðsynlegt að undirbúa vel. Efni samþykktarinnar er þess eðlis að það varðar atriði sem aðilar vinnumarkaðarins hafa tekist á um í kjarasamningum fram að þessu, að verulegu leyti án afskipta löggjafans. Mér virðist því óeðlilegt að Ísland staðfesti samþykktina nema áður hafi farið fram vönduð undirbúningsvinna að nauðsynlegri lagasmíð sem þarf að koma í kjölfar staðfestingarinnar. Ég tel því nauðsynlegt að aðilar vinnumarkaðarins tilnefni fulltrúa sem fylgjast með og taka þátt í þeirri lagasmíð ásamt starfsmönnum félmrn. Undirbúningur þessa verks er þegar hafinn.