13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 977 í B-deild Alþingistíðinda. (691)

116. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Iðnrh. (Sverrir Hermannsson):

Herra forseti. Í lok janúar s.l. skipaði ég nefnd til endurskoðunar verðjöfnunargjalds af raforku. Formaður nefndarinnar er Birgir Ísl. Gunnarsson, hv. alþm. Verkefni nefndarinnar var samkv. skipunarbréfi að taka til athugunar gildandi lög um verðjöfnunargjald með það fyrir augum að lækka gjaldið eða afnema það með öllu, enda verði með öðrum hætti séð fyrir fjárhag þeirra orkufyrirtækja sem notið hafa gjaldsins. Jafnframt skyldi nefndin hafa í huga þá stefnu mína að jafnað verði, eftir því sem kostur er, raforkuverði í landinu til heimilisnota. Nefndin hefur unnið markvisst að þessu verkefni með margvíslegri gagnasöfnun og úrvinnslu og eru tillögur hennar nú í mótun og á lokastigi. Er stefnt að því að lækka gjaldið í áföngum og afnema með öllu á næstu fjórum árum. Mun lagabreytingartillaga um fyrsta áfanga lækkunarinnar verða lögð fyrir Alþingi fyrir áramót og óskað eftir afgreiðslu á því lagafrv. að sjálfsögðu, sem nauðsyn ber til.

Ég get aðeins upplýst það að stefnt er að því að lækkunin verði úr 19%, eins og það er nú, í 10% og að sú tala gildi fyrir tvö ár, en síðan mundi það lækka í 5% og renna út með öllu að fjórum árum liðnum. Þetta eru þau áform sem uppi eru, en að fullu er ekki lokið við þessa tillögumótun enn sem komið er.