13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 978 í B-deild Alþingistíðinda. (694)

116. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Fyrirspyrjandi (Margrét Frímannsdóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. iðnrh. svör hans og fagna því að nefnd sú sem sett var til starfa skuli vera komin á lokastig vinnu sinnar og að þm. fái að fjalla um þetta fyrir áramót. En ég tel varhugavert ef nefndin horfir í tillögum sínum aðeins til þeirra veitna sem hafa notið verðjöfnunargjaldsins því þetta er mál sem varðar landið allt. Í þeim tillögum sem koma má ekki einungis taka tillit til þeirra svæða sem tilheyra Rafmagnsveitum ríkisins. Einnig mætti í þessum tillögum taka tillit til atvinnuvega okkar. Fiskvinnslan greiðir t.a.m. fullt verðjöfnunargjald og söluskatt fyrir sína raforku. Þar er ástandið mjög slæmt. Nægir að minna á fiskverkunarhús sem staðið hefur til að loka vegna vangoldinna raforkureikninga. Það er því æðimargt sem þessi nefnd þarf að hafa í huga þegar verðjöfnunargjaldið hefur þjónað sínum tilgangi og því hlutverki sem það fékk. Þá þarf að leita nýrra leiða til verðjöfnunar þannig að hún verði á víðara sviði en hún verið hefur.