13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (704)

142. mál, afnám tekjuskatts af almennum launatekjum

Fyrirspyrjandi (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svör hans við þeirri fsp. sem ég bar fram og fagna því, sem kom fram í svari hans svo langt sem það náði, að ákveðið er og fyrirhugað, eins og raunar kemur fram í forsendum fjárlaga, að ríða hér á vaðið með 600 millj. kr. lækkun skattsins eða um þriðjung. Jafnframt að haldið verði síðan áfram næstu tvö ár á þeirri braut. Að vísu hefði verið æskilegt að unnt hefði verið að vinna hraðar að þessum málum, en í till. er þó talað um að afnámið eigi sér stað í áföngum.

Einnig var fróðlegt að heyra að væntanlegt er frv. á næstunni frá fjmrh. um tekju- og eignarskatt. Án þess að hann tímasetti það nákvæmlega er greinilegt að sennilega mun ekki líða langur tími þar til það sér dagsins ljós. Væntanlega munu þá þau atriði skýrast sem ég vék að í fsp.

Eitt af þeim mikilvægustu er það að hér sé ekki aðeins um nafnbreytingu á skattheimtu að ræða, — að þegar niður fellur þriðjungur beinna skatta, þ.e. tekjuskattsins, komi óbeinir skattar í einhverri mynd í staðinn þannig að menn standi í sömu sporum. Hér er um grundvallaratriði að ræða. Ég treysti því að fjmrh., miðað við hina mjög bættu rekstrarstöðu ríkissjóðs um allt að því 1 milljarð, sjái til þess að hér verði um nettólækkun að ræða. Það er raunverulega það sem málið snýst um. — Það má bæta því við í svigum að óbeinir skattar eru í sjálfu sér ekki jafnþungbærir og sá skattur sem til umr. er nú í dag.

Annað atriði, sem ugglaust kemur einnig fram í frv., og ég er þá ekki að inna frekar hér eftir svari fjmrh., er hvernig að framkvæmdum verður staðið, þ.e. hvort hér verður fyrst og fremst um lækkun að ræða sem varðar lægstu tekjurnar — í sjálfu sér er það réttlætismál — eða hvort lækkuninni verður dreift yfir víðara bil í tekjustiga launþega.

Ég vil að svo búnu endurtaka þakkir mínar fyrir þær nýju upplýsingar sem fram komu í svari hæstv. fjmrh.