13.11.1984
Sameinað þing: 19. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (706)

142. mál, afnám tekjuskatts af almennum launatekjum

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég taka það fram að ég hef þegar látið gera svokallað módel af þessari umræddu skattalækkun upp á 600 millj. og í þeirri hugsmíð er ekki gert ráð fyrir að um tilfærslu skatta verði að ræða frá óbeinum sköttum yfir í söluskatt. Ég mun beita mér af alefli fyrir því að þessar 600 millj. verði skattalækkun, eins og dæmið hefur verið hugsað, en ekki tilfærsla á sköttum, eins og talað hefur verið um.