15.10.1984
Neðri deild: 3. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (71)
Um þingsköp
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Það hefur oft komið fyrir að fleiri en eitt umræðuefni hafi verið tekin fyrir til umr. utan dagskrár. En það hefur aldrei komið fyrir að þau væru tekin fyrir samtímis. Mér er ekki kunnugt um það að þeir sem vöktu máls á þessum tveimur umræðum utan dagskrár hafi óskað eftir því að það yrði gert í einum graut. Ef svo er, þá dreg ég til baka þær athugasemdir sem ég hef hér gert við þingsköp. En harla óeðlilegur þykir mér þessi vinnumáti, jafnvel þótt þeir hefðu gert það, því að fyrir því eru engin fordæmi og þetta eru að mínum dómi ótæk vinnubrögð. Ég verð eindregið að beina því til hæstv. forseta að skilja þessar umr. í sundur, því að ef þessi verklagsregla verður tekin upp, þá erum við óðara lent í því, ef tveir þm. óska eftir umr. utan dagskrár um einhver umræðuefni, að þar verði hin óskyldustu mál rædd í einum graut. Annar biður kannske um utandagskrárumr. vegna skattamála og hinn vegna samninga við ÍSAL og jafnvel sá þriðji um framfærslukostnað heimilanna. Á þá að ræða það allt í einum graut? Herra forseti. Þetta getur ekki gengið.