15.10.1984
Neðri deild: 3. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í B-deild Alþingistíðinda. (73)

Um þingsköp

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Í hita dagsins gerist það æðioft að menn átta sig ekki alveg á atburðarásinni. Hæstv. fjmrh. viðurkenndi það hér áðan að frammíköll framan úr sal hefðu e.t.v. komið honum til að segja hluti sem hann ætlaði að láta ósagða. Hæstv. forseta hafa orðið á þau mistök að hann tók ekki af dagskrá það mál sem hér var til umr. (Forseti: Það var ekki á dagskrá.) (Gripið fram í: Þetta eru utandagskrárumr.) Eða frestaði þeirri umr. Ég hef setið það lengi í skrifarasæti að ég minnist þess ekki að forseti hafi ekki ávallt frestað þeirri umr. sem var í gangi áður en hann upphóf nýja og ég hygg að það væri eðlilegt í þeirri stöðu sem nú er að forseti fresti þá þeirri umr. því það hlýtur að vera það sem þingheimur telur lágmarksaðgerð í málinu, eins og fram hefur komið, að ekki verði rætt um bæði málin framvegis. En ég vænti þess að hann telji sér í engu misboðið þó að e.t.v. geti það gerst að honum verði á mannleg mistök eins og öðrum mönnum.