15.11.1984
Sameinað þing: 21. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1054 í B-deild Alþingistíðinda. (747)
11. mál, lækkun á gjaldtöku fyrir lyfja- og lækniskostnað
Helgi Seljan:
Herra forseti. Það var vissulega fróðleg lesning sem hæstv. ráðh. flutti okkur og mörg þau atriði sem hann kom inn á er hægt að taka fyllilega undir. Hann fór hins vegar yfir vítt svið, heilbrigðissviðið allt, tryggingasviðið sömuleiðis. Það er ekki mitt mat að þarna sé allt í kalda koli og niðurníðslu, eins og mátti skilja af orðum hæstv. ráðh. að stjórnarandstaðan almennt héldi fram. Vissulega er þarna eytt miklum fjármunum. Vissulega tökum við einnig undir það að í þessum stóra málaflokki og víðfeðma sé þörf aðhalds og sparnaðar. Ég hygg að enginn vafi sé á því hvar fyrst og fremst eigi að taka á, þ.e. varðandi sjúkrahúsin fyrst og fremst. Það er ekki í sambandi við heilsugæslustöðvarnar heldur sjúkrahúsin fyrst og fremst sem þarf að taka á málum.
Þá kem ég að því sem hæstv. ráðh. sagði um forvarnarstarfið, að það þyrfti að vera í öndvegi. Undir það skal vissulega tekið. Enda er það aðalþema heilsugæslulaganna frá 1974 og hefur margt áunnist í þeim efnum.
Mér þykir hins vegar undravert hversu hógværir fundargestir hafa verið hjá hæstv. ráðh. á sumrinu sem leið. Það hafa verið hljóðir og hógværir menn sem hann hefur þar greinilega kveðið niður með sínu tali. Það getur ekki verið að hæstv. ráðh. sé alvara með því að telja að það bréf sem hv. 2. landsk. þm. las hér upp frá 15 félögum um skelfilegar afleiðingar ráðstafananna í vor, m.a. varðandi greiðslugetu sjúklinga og annað slíkt, sé ekki marktækt vegna þess að menn skrifi undir hvað sem er. Það mætti þá kannske benda hæstv. ráðh. á að ekki eru allir viðhlæjendur vinir og ekki víst að þeir, sem hafa talað mjúklega í eyru hans á þessum fundum og ekki hafa yfir neinu að kvarta, eftir því sem hann segir, muni gera það í annan tíma. A.m.k. hef ég bærilega orðið var við það á fundum hjá mér og ferðum mínum um mitt kjördæmi, þrátt fyrir góðu tíðina í sumar og heilsufarið margnefnda, sem hæstv. ráðh. óskaði okkur til hamingju með, að menn hafa vissulega hér undan kvartað.
Eins og þessi hæstv. ráðh. gerir oft fór hann á kostum í líkingamáli sínu varðandi stjórnarandstöðuna og sagði að ef einhver úr stjórnarandstöðunni ljúgi einhverju færu venjulega allir í kjölfarið. Hann nefndi sem dæmi að öll stjórnarandstaðan hefði sungið hér um sjúklingaskatt í umr. um vantraustið um daginn. Ég vil taka það fram af því að ég tók þátt í þessum umr. að ég nefndi þar aðeins hvaða prósentuhækkanir hefðu orðið á þessum greiðslum. Ég veit að hæstv. ráðh. hlýtur að líka það vel því hann var svo slyngur í prósentutalnameðferð hér áðan að undrum sætti.
Ég skal taka undir það að margt er vel gert í þessum málum enn þá. Skárra væri það nú ef þessari hæstv. ríkisstj. hefði tekist að brjóta niður það velferðarkerfi, sem hér hefur verið byggt upp í þessum efnum, á jafnstuttum tíma og hún hefur haft til umráða. Enda trúi ég því ekki á hæstv. ráðh. að hann sé á þeim buxunum. Ég held nefnilega að það sé meginmálið hvernig þessi hækkun á greiðslum er til komin. Og þar er eitt undrunarefni varðandi hæstv. ráðh. Því af mörgum undarlegum ráðstöfunum hæstv. ríkisstj. kom þessi mest á óvart. Við höfðum nefnilega upplifað það á s.l. þingi að horfa upp á linnulaust afsal tekna til ríkissjóðs, til samneyslunnar. Þar var verið að færa til fjármuni til þeirra sem betur mega sín, til fjármagnseigendanna, til hluthafa í fyrirtækjum, til bankanna t.d. Þetta var það sem kom mönnum helst í hug þegar þeir ætluðu að fara að fylla á ríkistankinn hjá hæstv. fjmrh. þeim áfyllingarmönnum sem það önnuðust. Ég segi það alveg hiklaust: Ekki dettur mér í hug að hæstv. ráðh. vilji bera saman gjöfina góðu til sólarlandafaranna, sem ríkisstjórnin veitti þeim í upphafi, og þessa skattlagningu. Ég ætla honum ekki þær hugleiðingar. Ég þykist þekkja hæstv. ráðh. þessara mála það vel að mér kom það alveg sérstaklega á óvart að hann skyldi með þessum hætti bjarga kærum félaga sínum og vini, hæstv. fjmrh. sérstaklega í ljósi þess sem hann sagði áðan um réttlætismál sem hann væri með á döfinni, m.a. varðandi skerðingu á tekjutryggingunni sem ég fagna mjög að hann beiti sér fyrir breytingum á.
Ekki þarf að tíunda neitt frekar um það hvar þessi tollur hefur komið alveg sérstaklega við og hvað hann hefur verið óvægilega grimmur mörgum þeim sem hann hittir verst fyrir. Bréfið, sem hér var vitnað til, er örugglega marktækt. Það er frá þeim fjölmörgu félögum sem vita best hvar skórinn kreppir. Mér finnst sá áfellisdómur þungur og að ekki sé hægt að afgreiða hann með þeim hætti sem hæstv. ráðh. gerði áðan, að undirskriftir af þessu tagi séu hreinlega ekki marktækar því menn skrifi undir hvað sem er nema víxla. Kjör þess fólks, sem hér er sérstaklega verið að tala um, leyfa engar álögur. Kjör þessa fólks eru ærið áhyggjuefni og hafa verið það fyrir álagningu þessa viðbótarskatts. Þessi staðreynd breytir engu um það sem hæstv. ráðh. kom mjög inn á til afsökunar og afbötunar þessum gjörningi að aðrir megi taka á sig gjaldtökuhækkun af þessu tagi. Mér skildist að hann væri að beina þessu alveg sérstaklega til okkar þm., að við ættum ekki að vera fyrir okkar hönd að víla og vola, við þyldum þetta mæta vel. Slík afsökun er óhæfa gagnvart þessu fólki þó að hún sé réttmæt gagnvart þeim sem vissulega þola.
Ég er ekkert að bera á móti því að ofnotkun lyfja og óþarfa læknaheimsóknir kunni að eiga sér stað hjá ýmsum. En það réttlætir ekki þessi verk. Og af því að hæstv. ráðh. hafði mörg orð um þetta væri fróðlegt að spyrja hann hvort hann hafi einhverjar handbærar upplýsingar um það hvort úr þessari ofnotkun hafi dregið hjá því fólki sem að þarflitlu leitar læknis eða neytir lyfja í of ríkum mæli miðað við þörf og heilsu. Mig undrar það a.m.k. ef hæstv. ráðh. hefur einhverjar upplýsingar um það að úr því hafi dregið. Ég held nefnilega að slíkt muni halda áfram vegna þess að það eru þeir sem hafa efni á því sem stunda þetta. En það er hitt fólkið, hin þjóðin, sem geldur þessa grimmilega. Ég trúi því ekki enn, þó hæstv. ráðh. hafi talað af slíku gáleysi um bréf þessara félagasamtaka áðan, að hann fari að taka undir kenningu hæstv. fjmrh. að allt séu þetta bara kommúnistar sem þarna séu á ferðinni. Ég hlýt því að spyrja í beinu framhaldi af þessu um þennan sparnað sem orðið hefur af þessari gjaldtöku, hvar hann hafi orðið og hvar hann hafi komið niður. Því að hér er um þá afsökun að ræða sem hæstv. ráðh. telur helst til gildis hækkun á þessum gjöldum.
Ég held að ég þurfi ekki að hafa mjög mörg orð um þetta að öðru leyti. Ég gæti tekið mörg dæmi um þennan aukatoll og þessa miklu hækkun. Ég efast t.d. ekkert um að það sem sveitungi minn sagði mér í sumar sé rétt. Hann er talnaglöggur maður ekki síður og vel að sér í prósentureikningi ekki síður en hæstv. ráðh: Hann hafði leitað læknis, þurft ákveðna skoðun, fékk tvo lyfseðla og eitthvað fleira. Hann sagði frá því að vísu með nokkru stolið, því hann hafði efni á því, að hann hefði fyllt fjárlagagatið um 1500 kr. á þessari rúmu viku. (Gripið fram í.) Hv. 11. landsk. þm. segir að þetta muni ekki miklu hjá þessum manni.
En þá er komið að hinum. Hv. 11. landsk. þm. er alltaf hittinn á hlutina. Hann gaf mér einmitt tilefni til að vitna í DV frá mánudeginum s.l. þar sem einmitt er viðtal við ágætan frænda minn, móðurbróður minn, sem er undir fyrirsögninni „Gamla fólkið er að kikna undan háu lyfjaverði.“ Vafalaust er það ekki marktækt eins og annað sem menn láta frá sér fara um þessi efni, heldur einungis það sem menn segja á fundunum hjá hæstv. ráðh. þegar hann les mönnum lesturinn. Þar segir hann frá því að hann taki tíu lyf daglega til að halda lífinu og segist fara með 1000 kr. á mánuði bara í lyf, sem er 1/8 af hans ellilífeyri. Þó veit ég að það er rétt sem hæstv. ráðh. tók hér fram að sum þessara lyfja eru ekki á þessari skrá þannig að hann þarf ekki að greiða fyrir þau sérstaklega. Hann tíundar svo hvernig þetta er. Í framhaldi af því að hv. 11. landsk. þm. greip frammí áðan vil ég segja að niðurlagsorð konu hans, Ragnheiðar, eru býsna lýsandi fyrir þetta fólk. Ég vitna orðrétt til hennar í lokin, með leyfi forseta:
„En við höldum vel utan um hlutina og kvörtum ekki meðan við fáum lyfin og eigum fyrir mat.“
Ég er ansi hræddur um að það sé svo ástatt um býsna marga. Ég kem nefnilega, hæstv. ráðh., á nokkuð margar stofnanir þar sem þetta fólk er vistað og veit nokkuð vel um það við hvaða lífskjör þetta fólk býr. Það hlýtur að læðast að manni sá óþægilegi en áleitni grunur að einmitt vegna nægjusemi þessa fólks, vegna þess hversu hógvært það er, vegna lítilla krafna þess til lífsins gæða og að það lætur að mestu í þögn og þolinmæði slíka hluti yfir sig ganga, sjái menn ástæðu til að vega sérstaklega í þennan knérunn og skattleggja þetta fólk sér í lagi. Á meðan er létt af þeim sem þola, sem við lúxuskjör búa, eins og þessum sveitunga mínum sem hv. 11. landsk. þykist alveg vita hver er, en hefur haft olnbogarými sér til handa til umsvifa og eignasöfnunar. Ég vil ekki trúa þessu, allra síst á hæstv. heilbr.og trmrh. En ég veit að baklið hans, stuttbuxnastrákarnir hans sem honum eru kærir, hugsar nákvæmlega á þessum nótum. Það er það baklið sem hæstv. ráðh. byggja hvað mest á og treysta best í öllum sínum gerðum. Ég hef stundum heyrt það á hæstv. ráðh. að hann væri kannske ekki allt of hrifinn af þessu liði. En engu að síður er það fast bakland og það sem meira er, að Framsfl. hefur alveg séð sérstaka ástæðu til að taka þessa frjálshyggjupostula upp á arma sína. Ef þeim hefur fundist einhver brotalöm hjá íhaldinu vera í því að taka ekki nógu mikið tillit til þeirra þá hefur Framsfl. hlaupið þar inn í og komið á ný fótunum undir þessa þokkapilta.
Um tryggingamálin og kjör elli- og örorkuþega væri vissulega ástæða til að ræða í víðara samhengi, eins og hæstv. ráðh. fór inn á hér áðan. Hann nefndi margar prósentutölur. Ég segi aðeins að því ber að fagna ef framkvæmt verður eins réttlátt mat og mögulegt er á þeirri prósentuhækkun sem ellilífeyrisþegar og örorkuþegar fá nú. Á það ber hins vegar að lita og það er meginmálið og það veit hæstv. ráðh. vel, að sá grunnur, sem þar er reiknað út frá, er lágur, það er lægsti tekjugrunnurinn í þjóðfélaginu. Prósentureglan skilar því ekki miklu á þennan lága grunn frekar en oft áður. Það þarf því annað og meira til að létta af þessu fólki og rétta kjör þess og aðstöðu því hér er að yfirgnæfandi hluta um láglaunafólk að ræða í allra lægsta tekjukanti í þjóðfélaginu. Þess vegna segja prósentutölur til eða frá ekki alla söguna. Eða vill hæstv. ráðh. halda því fram í framhaldi af öll um háu prósentutölunum, sem hann nefndi áðan um bættan hlut þeirra verst settu á s.l. vetri, að kaupmáttur þessa fólks hafi aukist í stjórnartíð hans? Mér þætti, þrátt fyrir allar hans prósentur, með miklum ólíkindum ef hann gæti sannað það. En vitanlega mun hann gera það ef hann getur.
Ég skal taka tillit til óska hæstv. forseta um að lengja ekki þessar umr. úr hófi þó að hæstv. ráðh. hafi farið hér það vítt yfir að full ástæða væri til að taka þetta mál upp í víðasta samhengi, tryggingamálin alveg sérstaklega, bætur og kaupmátt elli- og örorkuþega, þeirra sem ekki eiga rétt á þokkalegum hlut úr lífeyrissjóðum til viðbótar. En ég skal ekki gera það nú. Ég vil að lokum geta þess að okkar flokkur hyggst flytja um það frv. að kostnaðarhækkanir við lyf og læknisþjónustu verði í samræmi við breytingar elli- og örorkulífeyris hverju sinni, að kostnaðarhækkun þessa fólks verði aldrei meiri af svo lífsnauðsynlegum hlutum en sem nemur hlutfallslegri hækkun elli- og örorkulífeyris hverju sinni. Hefði þeirri grunnreglu verið fylgt hefði þessi hópur ekki orðið svo hart úti í vor sem raun bar vitni. Þetta eru þeir þjóðfélagshópar sem við verður að miða varðandi þessa gjaldtöku í heild sinni og taka fyllsta tillit til þegar ákvarðanir eru teknar í þessum efnum. Það verður í framtíðinni að mínu viti að vera hin eðlilega viðmiðun og forsenda allra breytinga af þessu tagi.