15.11.1984
Sameinað þing: 21. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1061 í B-deild Alþingistíðinda. (750)

11. mál, lækkun á gjaldtöku fyrir lyfja- og lækniskostnað

Flm. (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Hæstv. heilbrmrh. sá ástæðu til þess að hafa langt og ítarlegt mál um þá till. til þál. sem hér er til umr., enda veit hæstv. ráðh. upp á sig skömmina þó að það væri ekki að heyra í máli hans áðan að hann skammaðist sín hið minnsta fyrir hækkun á gjöldum sem lögð hafa verið á sjúka í þjóðfélaginu.

Það er orðið nokkuð langt um liðið síðan ég hafði framsögu fyrir þessu máli og rökstuddi ítarlega hve ranglega hefði hér verið að staðið með því að hækka lyfja- og læknakostnað sjúkra í þjóðfélaginu og hve brýnt væri að ná samstöðu um lækkun á þessum gjöldum. Ég tel ekki ástæðu tímans vegna til þess að hafa ítarlegt mál nú um þetta. En hæstv. ráðh. kom víða við í sínu máli og væri auðvitað ástæða til þess að fjalla um ýmsa þá þætti sem fram komu í hans máli.

Hæstv. ráðh. sagði til að mynda að ef draga ætti úr þessari skattlagningu á sjúka í þjóðfélaginu þýddi það vitaskuld hærri skatta. Ég er alls ekki sammála hæstv. ráðh. í því efni vegna þess að það má færa til fjármuni í þessu þjóðfélagi án þess að leggja þurfi á nýja skatta. Það er til að mynda harla einkennilegt að á sama tíma og þessi gjöld voru lögð á sjúklinga í þjóðfélaginu skuli hæstv. ríkisstj. telja sig aflögufæra til þess að veita bankastofnunum skattaívilnanir eða skattfríðindi til fyrirtækja sem samþykkt voru á síðasta þingi, t.d. lækkun á skattprósentu, auknar afskriftir og fleira. Það væri fróðlegt að fá að vita hvert er heildartap ríkissjóðs af þeim sökum. Það er a.m.k. sú upphæð, sem hér um ræðir, sem lögð hefur verið á sjúka í þjóðfélaginu.

Í máli mínu hér um daginn lagði ég tvær spurningar fyrir hæstv. ráðh. Önnur var um það hvernig vænta mætti þess að elli og örorkulífeyrisþegar fengju hækkun á lífeyri sínum. Ég fagna svörum hæstv. ráðh. í því efni að elli- og örorkulífeyrisþegar fái hækkun sem verði eigi lægri en launþegar hafa almennt fengið. Sérstaklega ber að fagna þeirri yfirlýsingu hæstv. ráðh. að þær hækkanir muni gilda frá sama tíma og launþegar fengju sínar kjarabætur. Ráðh. upplýsir hér að þetta muni að vísu taka einhvern tíma, en ég treysti því að hæstv. ráðh. sjái til þess að allri framkvæmd verði hraðað eins og kostur er því að það er erfitt fyrir aldraða og öryrkja að bíða eftir hækkun á sínum lífeyri.

Hin spurningin, sem ég lagði fyrir ráðh., var hver væri afstaða ráðh. til bréfs 15 félagasamtaka, þ.á.m. félagasamtaka aldraðra og fatlaðra, sem sent var þm. Svör ráðh. ollu mér vonbrigðum. Ráðh. segir hreint út að þetta bréf sé bara áróður. Það ber vissulega að harma þau orð ráðh. vegna þess að hér er á ferðinni aðvörun sem ber að taka mark á. Ég leyfi mér a.m.k. að taka eins mikið mark á því sem fram kemur í bréfi þessara félagasamtaka eins og læknum sem hæstv. ráðh. hefur frekar tilhneigingu til að trúa.

Hæstv. heilbrmrh. hlýtur að verða að taka það alvarlega . þegar 15 félög lýsa því yfir að aðgerðir stjórnvalda séu farnar að hafa áhrif til hins verra á heilsu og afkomu skjólstæðinga sinna, svo og annarra sjúklinga með langvarandi sjúkdóma. Það er nefnilega svo að það eru ótrúlega margir elli- og örorkulífeyrisþegar sem hafa einungis sér til framfærslu lífeyri almannatrygginga. Þegar ég grennslaðist fyrir um það mál kom í ljós að 8200 aldraðir fá óskerta tekjutryggingu. Það eru 40% allra 67 ára og eldri hér á landi. Og ef litið er til þess fjölda sem þarf að lifa á og hefur einungis sér til framfærslu lífeyri almannatrygginga, þ.e. örorkulífeyrisþegar, þá eru það 59% af þeim sem fá örorkulífeyri eða um 1800–1900 manns sem hafa einungis sér til framfærslu lífeyri almannatrygginga. Þetta er mjög stór hópur. Þessi hækkun á gjaldtöku kemur, hvað sem orðum ráðh. líður, illa við þennan hóp fólks.

Hæstv. ráðh. reyndi að gera tortryggilega þáltill. sem hér er flutt og reyndi að færa rök fyrir því að hér væri verið að leggja til hækkun á lyfjakostnaði sjúkra. Þetta er auðvitað alrangt og ekkert annað en útúrsnúningur hæstv. ráðh. Hann ber það á borð hér að ef þetta yrði samþykkt eins og hér er lagt til, og hann nefnir dæmi um tiltekin lyf, gætu sjúklingar þurft að greiða 2500 kr. þar sem þeir þyrftu að greiða 25% af ákveðnum lyfjum sem hann nefndi. Þetta er ekkert annað en útúrsnúningur. Í þessari till. til þál. segir að hlutur sjúklinga í áætluðum heildarlyfjakostnaði verði aldrei hærri en 25%. Í grg., með leyfi forseta, segir um þetta:

„Apótekarafélag Íslands gerði könnun vikuna 2.–6. apríl s.l.“, og ég tek fram að það er áður en þessi gjöld voru hækkuð, „á greiðsluskiptingu lyfja milli sjúklinga og sjúkrasamlaga. Þar kemur í ljós að af heildarlyfjasölunni skiptust greiðslur þannig að sjúklingar greiða 13.8% og sjúkrasamlög 86.2%. Jafnframt kom fram að til þess að aðrir en aldraðir og öryrkjar yrðu látnir greiða um 25% af lyfjakostnaði þyrfti að hækka hlut sjúklings fyrir erlend lyf úr 100 kr. í 122 kr. og fyrir innlend lyf úr 50 í 61 kr. Í reglugerðarbreytingunum frá því í maí s.l. er hlutur sjúklings hins vegar hækkaður nálega tvöfalt meira og nemur nú 50% af heildarlyfjakostnaði.“

Ég tel að þetta, sem fram kemur hjá Apótekarafélagi Íslands, sé miklu nær sanni en það sem fram kemur hjá ráðh. þegar hann heldur því fram að nú sé hlutur sjúklinga í heildarlyfjakostnaði — ráðh. leiðréttir mig þá ef ég fer ekki rétt með — 15 til 20%. Það er nefnilega svo, og um það hef ég staðfestar upplýsingar, að á s.l. tíu árum hefur hlutur sjúklings verið að meðaltali um 20–22% í lyfjakostnaði, og það er fyrir hækkunina. Hækkunin er a.m.k. 170%, þannig að þarna er um helmingshækkun að ræða að mínu mati.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til þess að hafa miklu fleiri orð um þetta mál.

Hæstv. ráðh. telur að ekki standi efni til þess að breyta neitt þeirri gjaldtöku fyrir lyfja- og læknisþjónustu sem á var lögð s.l. sumar, en telur þó að endurskoða þurfi þann hluta reglugerðarinnar er fjallar um rannsóknir á elli- og örorkulífeyrisþegum og hann tekur jafnframt fram að endurskoða þurfi þetta gjald hjá barnmörgum fjölskyldum. Það er vissulega skref í rétta átt ef það er gert og vænti ég þess að hæstv. ráðh. standi við það.

En það er ekki öll nótt úti enn. Það er Alþingi, að mínu mati, sem á að hafa síðasta orðið í þessu efni. Alþingi á eftir að fjalla um þessa till. Hún á eftir að fara til nefndar og ég leyfi mér enn að vona að það geti náðst samstaða um þetta mikilvæga mál.

Annað sem ég vil segja að lokum er að ég fagna því sem kom fram í máli hæstv. ráðh. er hann lýsti því yfir að frá og með næstu áramótum eigi að hætta skerðingu á örorkustyrk vegna tekna maka. Hér er vissulega mikið réttlætismál á ferðinni sem hæstv. ráðh. bendir á. Nú kom þetta mér ekki á óvart vegna þess að þetta mál hefur verið til umfjöllunar í tryggingaráði í heilt ár. Þar lagði ég fram tillögur um þetta efni, að hætt yrði skerðingu á örorkustyrk vegna tekna maka. Af eðlilegum ástæðum tók tryggingaráð sér nokkurn tíma í að athuga kostnað þessu samfara. Í sumar var samþykkt í tryggingaráði tillaga þessa efnis og send hæstv. heilbrmrh. og óskað eftir því að hann féllist á hana. Hæstv. ráðh. hefur vissulega tekið vel í þessa tillögu sem fram hefur komið í tryggingaráði, þó endanlega hafi ekki borist skriflegt svar til tryggingaráðs um samþykki ráðh. við þessu. Nú liggur það endanlega fyrir, þegar ráðh. hefur lýst því hér í ræðustól, að eftir þessari tillögu tryggingaráðs verði farið og vil ég í lokin fagna því sérstaklega.