15.11.1984
Sameinað þing: 21. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1063 í B-deild Alþingistíðinda. (751)
11. mál, lækkun á gjaldtöku fyrir lyfja- og lækniskostnað
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég skal reyna að vera stuttorður þó að ræður hér hafi gefið tilefni til annars.
Mér þykir leitt hversu hv. þm., sem talaði næstsíðastur, er farin að förlast heyrn. Hann segir að ég hafi sagt að ellilífeyrisþegar ættu að skammast sín. Ég sagði að við ættum að skammast okkar sem hefðum tekjurnar að vera að kvarta undan þessu gjaldi. Það er töluvert annað. Ég held að hv. þm. sé ekki kominn á ellilífeyrisaldur frekar en ég svo að hann ætti að skilja þetta. Ég hélt að þetta væri svo auðskilið að það þyrfti ekkert að vera að snúa út úr með svona vitleysu.
Út af því sem hv. síðasti ræðumaður sagði, þá hef ég skrifað þetta bréf og sent það. Annars hefði ég ekki komið með það hérna inn í umr. Ég get ekki gert að því þó að tryggingaráð hafi ekki allt séð bréfið. Ég skrifaði ekki hverjum manni í tryggingaráði, heldur til formanns tryggingaráðs. Það er því afgreitt mál. En það hefði kannske mátt taka þetta til athugunar eitthvað fyrr. Treystir hv. þm. engum til þess nema ráðh. Sjálfstfl.? Alþfl. átti ráðh. 1978–1979. Ekki tók hann þetta upp. Það hefur enginn minnst á iðgjöldin sem voru 1971 og það mikla hlutfall.
En það er dæmigert fyrir fulltrúa Kvennalistans hvernig hann talar því að Alþb. kemst aldrei með tærnar þar sem Kvennalistinn hefur hælana í ábyrgðarleysinu, enda, eru þær sprettharðar þar á bæ. Sanngirni var ekki til þar. Ekki sá fulltrúi Kvennalistans þær breytingar sem hér er verið að gera. Alls ekki. Ekki var fulltrúi Kvennalistans á því að viðurkenna að framlög til heilbrigðis- og tryggingamála hefðu hækkað. Nei, það var bara tekið svo og svo mikið af einstaklingunum, einstaklingunum, einstaklingunum. Þetta land leggur hlutfallslega mest til heilbrigðis- og tryggingamála í veröldinni ásamt tveimur öðrum löndum sem ég mun koma inn á. Nei, fulltrúi Kvennalistans sá það ekki, enda á ekki fulltrúi Kvennalistans að sjá nema bara 3, 4, 5 málefni. Þessir þm. mega ekki sjá meira. Ég skil það. Ég geri engar kröfur til þess að fulltrúi Kvennalistans sjái meira. Sjónarsviðið er ekki víðara en þetta.
Ég vil minna á hvernig bótategundir almannatrygginga hafa hækkað frá því að þessi ríkisstj. tók við og til þessa dags og eru nú hækkanir fram undan. Mæðra- og feðralaun hafa hækkað um 78 millj. kr. á ári, barnalífeyrir um 35 millj., tekjutrygging ellilífeyrisþega um 160 millj., tekjutrygging örorkulífeyrisþega um 26 millj. og heimilisuppbótin um 7 millj. Ef við berum þetta saman við hækkun kauptaxta, þá hækkuðu mæðra- og feðralaun umfram hækkun kauptaxta um 133.4%, barnalífeyrir um 16.5%, tekjutrygging ellilífeyrisþega um 32%, tekjutrygging örorkulífeyrisþega um 25% og heimilisuppbót um 12%. Og við skulum hafa samanburðinn alveg fullkominn og segja: Hvað hefur þessi hækkun orðið mikil umfram framfærsluvísitölu? Mæðra- og feðralaun hafa hækkað um 116.5%, barnalífeyrir um 1.8%, tekjutrygging ellilífeyrisþega um 15.3%, tekjutrygging örorkulífeyrisþega um 9.2%, en heimilisuppbót er mínus 2.2% undir framfærsluvísitölu. (MHM: En grunnlífeyririnn?) Ég er að tala hér um hækkun bóta í millj. kr., hækkun í hlutfalli við hækkun kauptaxta og svo hækkun umfram framfærsluvísitölu.