19.11.1984
Efri deild: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1072 í B-deild Alþingistíðinda. (759)
Umræður utan dagskrár
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Virðulegi forseti. Með reglugerð um stjórn botnfiskveiða fyrir árið 1984. sem gefin var út 8. febr. 1984 að höfðu samráði við sjútvn. þingsins og fleiri, var ákveðið að minni bátar, 10 brúttólestir og þar undir, skyldu veiða úr sameiginlegu heildaraflamarki og var því skipt á tímabil.
Á fyrsta tímabili var gert ráð fyrir því að aflamarkið væri 1770 lestir eftir að þorskaflinn var hækkaður um 10%. Skráð veiði er 1483.8 lestir eða nokkru minna. Hins vegar hefur Fiskifélag Íslands skýrt mér frá því að trúlega vanti þarna nokkuð upp á því að skráning hafi ekki verið fullnægjandi á fyrsta tímabilinu og þar af leiðandi sé líklegt að afli hafi farið nokkuð yfir sett mörk.
Á öðru tímabili var aflamark 3185 lestir. en aflinn var 3678.9 lestir.
Á þriðja tímabili. júlí til ágúst. var aflamarkið 4600 lestir. en skráður afli er 4863.4 lestir.
Á síðasta tímabili bárust upplýsingar mjög seint vegna verkfalls opinberra starfsmanna. Okkur bárust þær upplýsingar seinni partinn s.l. fimmtudag eða á föstudagsmorgun. ég get ekki alveg fullyrt hvort var, en mér var kunnugt um það á föstudagsmorgun. Þá berast þær upplýsingar að aflinn sé orðinn á þessu tímabili, í september og október 2326.7 lestir. en aflamarkið var ákveðið 2080 lestir fyrir allt tímabilið, þ.e. að nóvember- og desembermánuði meðtöldum.
Í samræmi við þessar ákvarðanir og þessa reglugerð bar okkur að stöðva þessar veiðar. Nú má alltaf um það deila hvernig afla skuli skipt og hvernig skuli ganga fram í slíkum málum. Ég get verið sammála hv. þm. um það að hér er um tiltölulega lítið mál að tefla. Hins vegar ber að geta þess að það eru aðrir bátar sem hafa þurft að veiða úr kvóta eða aflamarki og fengið aflamark hver fyrir sig. Það eru oft og tíðum bátar sem eru 11 lestir og hafa þurft að stöðvast um alllangan tíma. Sjómönnum á þessum bátum hefur þótt þeir vera beittir miklu órétti því að minni bátar, sem hafa haft svipaða möguleika, hafi getað veitt mun meira en þeir. Því miður er hér oft um samanburð að ræða sem erfitt er að ráða við og það er að sjálfsögðu nauðsynlegt að hafa ekki aðeins þær reglur í heiðri sem varða þessa báta heldur einnig þær reglur sem varða hina minni sameiginlega.
Nú er það svo að þeir hafa veitt samtals í janúar til október 12352.8 lestir. Fiskifélagið gerir ráð fyrir að hér geti verið um skekkjumörk að ræða upp á 8–9% Þar að auki á eftir að berast aflinn fyrir nóvembermánuð. Okkur þótti að það væri skylt að fara eftir þessum reglum með sama hætti og við höfum gert varðandi einstök skip og mér kemur það á óvart ef einhver hefur fengið þau svör að það stæði ekki til að stöðva þessar veiðar. Ég get til þess vitnað að 16. október svaraði ég fyrirspurn hér á Alþingi um þessi mál og þar segi ég, með leyfi virðulegs forseta:
„Það er á hinn bóginn sýnt að þeir, þ.e. þessir bátar stöðvast að líkindum í nóvember, en þá er afli tekinn að tregast hjá þessari bátastærð og veður farin að gerast válynd til sjósóknar á þeim.“
Það hefur því alltaf legið fyrir að til þessa mundi koma. Hins vegar sýnir þetta e.t.v. betur en margt annað hvað það getur verið erfitt að stöðva veiðar ákveðinnar bátastærðar og veiðar úr sameiginlegu heildaraflamarki. Ef við hefðum látið alla báta við landið veiða úr sameiginlegri heild á s.l. vetri þá er mjög líklegt að það hefði þurft að stöðva veiðar þessara skipa allsnemma á vertíðinni og þá hefðu ýmsir staðir og ýmsir landshlutar orðið algerlega útundan. Það færir rök að því að í slíkum tilvikum sé hentugra að hver og einn viti nokkurn veginn hvað hann má taka.
Nú er það svo að sú ákvörðun að þessir bátar veiði úr sameiginlegu aflamarki hefur orðið til þess að nokkuð hefur bæst í þennan hóp og fleiri komið inn í hann og sótt fastar sem orðið hefur til þess að aflinn hefur orðið meiri. Ég vil vitna til þess sem ég áður sagði að þeir hafa í reynd farið nokkuð fram úr. Það er mjög erfitt að verja það gagnvart þeim sem eiga stærri báta, 11 til 12 tonn t.d., og hafa þurft að stöðva við ákveðið aflamark, að þeir skuli þurfa að gera það en ekki skuli sett takmörk á minni báta.
Það var ákveðið að reyna að fylgja þessum reglum sem mest á þessu ári. Að sjálfsögðu þarf að taka ýmislegt til endurskoðunar og hvort sem mér eða öðrum líkar það betur eða verr þá verður þar eitt að gilda um alla.
Hitt er svo annað mál að ég get á margan hátt tekið undir það með hv. þm. að hér er um mjög stuttan fyrirvara að ræða. Það kemur til af því að upplýsingar um október-aflann bárust afskaplega seint vegna verkfalls opinberra starfsmanna. Hins vegar tel ég einsýnt að menn hefðu mátt vita að til þessarar stöðvunar kæmi. Það sem gerir hana e.t.v. sárari nú en annars hefði orðið er það hvað tíð hefur verið óvenjugóð og veður verið tiltölulega góð til sjósóknar fyrir þessa bátastærð því að yfirleitt hefur dregið mjög úr veiðum þessara báta þegar þessi tími er kominn.
Ég vildi að lokum svara þeirri fsp. hv. þm. um tilflutning á afla. Þessir bátar veiða úr sameiginlegu aflamarki og það er óheimilt að flytja afla frá öðrum skipum sem fá sérstakt aflamark inn í þennan flokk báta. Ég tel það eðlilegt, enda væri það mjög breytilegt hverjir gætu fengið slíkan afla fluttan frá öðrum skipum og því hefur ávallt verið svarað þannig að það væri óheimilt. Þegar stöðvun var í eina viku í sumar komu margar fyrirspurnir um þetta. Það var í engu tilviki heimilað og svo er enn.
Ég vænti þess að þessi svör skýri í nokkru það sem hv. þm. spurði um. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að hér er um sárt mál í mörgum tilvikum að tefla. Hins vegar verðum við að hafa það í huga að samanburðurinn á milli bátastærða getur einnig oft verið erfiður. Það var gert ráð fyrir því í þessari 5. gr. að ýsan væri þar með talin. Hún er 700 tonn og þar af leiðandi er ekkert um annað að ræða varðandi þessa báta en að það verður að stöðva þá. Það er ekki hægt að leyfa þeim veiðar á einhverri sérstakri tegund og hefur aldrei verið gert ráð fyrir því vegna þess að í þeirra heildarkvóta er þorskur, ýsa, ufsi, skarkoli og steinbítur samtals 11 630 tonn og það má gera ráð fyrir því að afli þeirra sé farinn að nálgast 14 þús. tonn.