19.11.1984
Efri deild: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1075 í B-deild Alþingistíðinda. (761)
Umræður utan dagskrár
Árni Johnsen:
Hæstv. forseti. Hér er fjallað um mál sem snertir vissulega stóran hóp manna og ástæða er til að ræða um. Þeir sjómenn, sem stunda sjó á 10 tonna bátum og þar undir, hafa nokkra sérstöðu í okkar sjósókn. Í fyrsta lagi eru sjómenn á þeim bátum mest háðir veðri. Í öðru lagi eru þetta þeir sjómenn sem ekki hafa kauptryggingu. Það tel ég vega þyngst í málinu þegar það er rætt á þeim grunni sem hér er gert.
Hér er annars vegar um að ræða svokallaða áhugasjómenn, helgarsjómenn. tómstundasjómenn og hins vegar atvinnusjómenn og þeir eru í miklum minni hluta. Það er alveg sama hvar maður fer um landið og kannar stöðuna í þessu. Við getum nefnt á Akureyri. Þar eru tæplega 100 trillur undir 10 tonnum. Það eru innan við 10 atvinnusjómenn á þeim flota. En allflestir skila einhverjum afla, að vísu nokkrir sem skila engum. Þarna má segja að þeir hafi jafnréttisgrundvöll. atvinnusjómennirnir og áhugasjómennirnir. Það er auðvitað galli þegar svona staða kemur upp, að þeir sem hafa fulla atvinnu af þessari sjósókn. tapa vinnunni, en hinir geta gengið áfram til sinnar vinnu þó að sóknin sé skert á þennan hátt.
Á Ísafirði eru 25–30 trillubátar. Það er enginn sem hefur fulla atvinnu af sjósókn á þeim flota, ef ég man rétt. Það má taka Borgarfjörð eystri. Þar eru u.þ.b. 15 trillubátar sem eru undir 10 tonnum. Þar er líklega u.þ.b. helmingurinn sem hefur meiri og minni atvinnu af sjósókn. en hinn helmingurinn fulla atvinnu. Við getum tekið eina verstöð enn. Vestmannaeyjar. Þar eru 50–60 trillubátar. Það eru ekki nema 7–8 menn sem hafa fulla atvinnu af sjósókn á þessum bátum. en allmargir sem skila þó nokkrum afla í land í aukavinnu. Þarna raskast hlutfallið. Þetta er þeim mun erfiðara þegar það kemur upp varðandi þá sem hafa hvorki kauptryggingu né aðra atvinnu að ganga að. Ég held að ástæða væri til að kanna það sérstaklega og beina þeim tilmælum til ráðh. að hann kannaði til fulls hvort unnt væri að ganga þarna til móts við menn. Þetta er svolítið misjafnt eftir því hvar er á landinu á þessum árstíma, en það kemur auðvitað upp í slíkri einmuna tíð sem nú er að menn vilja sækja sjóinn þegar gefur, sérstaklega á þessum litlu bátum.
Það má líka benda á það af því að ég minntist á Vestmannaeyjar að það kemur sér sérstaklega illa fyrir bátana þar. Þeir lentu þar í mánaðarlöngu sumarleyfisstoppi. Síðan lenda þeir í nær mánaðar stoppi vegna lokunar frystihúsa þannig að þeir verða illa úti. Svo þegar gefur á sjóinn er þetta mjög mikið vandamál sem full ástæða er til að benda á og taka á með góðvild og jákvæðum hug til lausnar. Um er að ræða áhugamenn sem hafa staðið jafnfætis atvinnumönnunum sem verða að treysta á þessa atvinnu. Það er því misræmi í reglunum sem erfitt er við að eiga þegar ekki er kveðið nánar á um hvernig taka eigi á þessum málum. eins og hæstv. ráðh. hefur bent á hér. Ég vil hvetja til þess að reynt verði að finna leið til þess að þeir aðilar sem hafi fulla atvinnu af slíku, geti gert það á meðan tíð er. Ég vil benda á að Fiskifélag Íslands á á auðveldan hátt að geta fundið út hverjir eru atvinnumenn til fulls.