19.11.1984
Efri deild: 15. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1081 í B-deild Alþingistíðinda. (769)

155. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að fara að karpa um skattamál við hæstv. fjmrh.. ekki í löngu máli a.m.k. Það sem ég tel að ríkisstj. hafi gert slæmt í skattamálum er m.a. það að létta skatta á stóreignamönnum og stórfyrirtækjum en herða og þyngja skattbyrði almennings. Undan þessu verður ekki vikist né heldur verður þessu neitað með neinum rökum. En það var nú ekki, virðulegi forseti, ástæðan til þess að ég kvaddi mér hljóðs heldur það að skylt er ævinlega að hafa það sem sannara reynist.

Ég er hér með útgáfu af lögum um tekju- og eignarskatt frá 1981 og var raunar líka búinn að fletta upp í lagasafni, hinu nýja, en þar eru þessi ákvæði ekki. Hins vegar hefur mér verið bent á það og það komið hér fram að á árinu 1983 var samþykki till. til breytingar á þessum 7. lið, eins og hæstv. fjmrh. gat hér réttilega um, og að hans frumkvæði m.a. En mín ósk er hins vegar sú, og ég mun beita mér fyrir því í nefndinni, að endurskoðað verði hvort þetta ákvæði sé nægilega skýrt og ótvírætt, þannig að hér sé ekki hverju sinni um geðþóttaákvarðanir skattyfirvalda að ræða, heldur sé þetta alveg skýrt og ótvírætt. Ég fagna því að við hæstv. fjmrh. erum alveg sammála um þetta atriði. Og komi það í ljós að þetta ákvæði er ótvírætt og skýrt og skilmerkilega orðað þá er auðvitað engin ástæða til að breyta því. En komi hins vegar í ljós að þarna sé nokkur vafi og ástæða til að breyta, þá munum við auðvitað gera það. Ég fagna því að nefndin skuli þá hafa stuðning hæstv. fjmrh. til að breyta þessu á þann veg að taka af öll tvímæli ef einhver eru.