19.11.1984
Neðri deild: 13. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (783)
136. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Það er bara eitt annað atriði sem ég held að eigi erindi í þessa umr. og mig langar að bæta við.
Ekkert okkar, sem höfum talað í þessari umr., hefur skilgreint hvað við meinum með orðinu líftækni eða lífefnatækni eða lífefnaiðnaður. Í raun er um afar víðtækt svið að ræða sem spannar allt frá vinnslu hvata eða virkra efna úr afgangi eða úrgangi fiska eða sláturdýra allt til flutnings erfðaeiginda á milli lífvera og ýmsa framleiðslu því tengda. Og það er kannske nauðsynlegt fyrir okkur að vera nákvæmari í orðavali í raun og veru vegna þess að það gilda ekki sömu lögmál um það hvernig þarf að standa að þekkingarsköpun og þróun um hina ýmsu þætti innan þessa breiða sviðs. Það getur vel verið að það megi velja stað norðan heiða og efast enginn hvorki um hæfni einstaklinga né aðrar aðstæður þar. Það getur vel verið að sumt af þessu eigi heima hvar sem er á landinu og sé einmitt mjög vel fallið til þess að skapa atvinnu og virkni þar sem hún er ekki fyrir.
En þar sem er um að ræða grundvallarþróunarverkefni sem þarfnast ákveðinnar þekkingarþéttni, einhverrar lágmarksþekkingarþéttni, þá er óhjákvæmilegt að þeim sé fundinn staður í þéttbýliskjarna eins og t.d. Reykjavík og er sumt jafnvel varla lífvænlegt þar, vegna þess að einstaklingarnir eru ekki nógu margir og þekkingin er sem stendur ekki nægileg til þess að nauðsynleg víxlfrjóvgun hugmynda fari fram. Við verðum nefnilega held ég að hyggja að lágmarksþekkingarþéttni, þekkingarsköpun. Það er grundvöllur undir þessu öllu. Síðan kemur útfærslan í atvinnuvegina síðar. Sumt af því er e.t.v. tilbúið til þess að virkja það í atvinnuhætti eða þarf ekki langa þróun til. Annað er í ljósára fjarlægð frá okkur. Að lokum: ég held að við verðum að vera nákvæmari í orðavali þegar við erum að tala um líftækni. Ég skal reyna að vera það næst.