19.11.1984
Neðri deild: 13. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í B-deild Alþingistíðinda. (784)
136. mál, rannsóknir í þágu atvinnuveganna
Flm. (Steingrímur J. Sigfússon):
Herra forseti. Aðeins örfá orð í framhaldi af þessum umr.
Ég vil byrja á því að taka undir með hv. 3. landsk. þm. Að sjálfsögðu þarf að skilgreina og er nauðsynlegt að skilgreina hvað átt er við með orðinu líftækni. Það mun óhjákvæmilega verða gert þegar menn komast lengra áfram á þeirri braut sem við erum að byrja að feta okkur eftir nú. En ég held að við hljótum fyrst og fremst að vera á höttum eftir þeim ávinningum innan líftækninnar sem aðferðar sem snúa að hagnýtri framleiðslu og þá fyrst og fremst í tengslum við okkar sérstöku íslensku möguleika, hráefni frá sjávarútvegi og landbúnaði, og hugsanlega það svið sem snýr að möguleikum þeirra örvera sem við höfum umfram aðra, hitaþolnar örverur úr hverum og möguleika þá sem þær bjóða upp á. Ég held að þau svið líftækninnar sem vissulega eru fyrir hendi og vissulega eru umrædd úti í hinum stóra heimi, sem liggja hins vegar lengra frá okkur, eins og rannsóknir á sviði erfðafræði, séu tæplega á okkar valdi eins og staðan er í dag og verði það tæplega á næstu árum. Hins vegar held ég að við hljótum að snúa okkur fyrst og fremst, svo ég endurtaki það, að þeim möguleikum þar sem við teljum að okkar séríslensku aðstæður kunni að bjóða okkur upp á, möguleikum þar sem við getum verið fyllilega samkeppnisfærir, jafnvel haft forustu umfram aðra á þessu sviði. Fróðir menn telja að ástæða sé til að ætla að okkar aðstæður bjóði upp á talsverða möguleika að þessu leyti.
Ég vil taka það fram að ég skil efasemdir hv. þm. Guðmundar Einarssonar um réttmæti þess aðferðafræðilega að standa að uppbyggingu þessarar rannsóknarstarfsemi, en ég held ég vísi til þess sem ég sagði hér áðan um nauðsyn þess að þegar í upphafi verði hugað að því hvar þessi starfsemi eigi að byggjast upp til framtíðar. Ég endurtek einnig að ég geri mér grein fyrir að hér er á ferðinni mál sem ekki er á dagskrá í dag né alveg næstu daga, heldur er hér um framtíðarverkefni að ræða.
Ég vil vekja athygli á því að þeir menn sem standa í þessum rannsóknum í dag við erfiðar aðstæður og við lítil efni eru að sjálfsögðu ekki líklegir til að gera tillögur um annað en að þeir fái fjármagn og aðstöðu til þess að sinna þeim verkum sem þeir standa í. Það liggur í hlutarins eðli. En ég held að það sé hlutverk okkar stjórnmálamannanna að reyna að móta framtíðarstefnuna og reyna að sjá yfir allt sviðið, reyna að líta fram hjá þeim hagsmunum sem hver og einn hefur í sambandi við þá starfsemi sem hann stendur í og af þeim áhugamálum sem hann er að sinna þá og þá stundina.
Ég tók það fram að ég styð þær fjárveitingabeiðnir sem komið hafa frá aðilum sem standa í rannsóknum á þessu sviði þó e.t.v. sé réttara að nefna þær kannanir eða athuganir. Við erum hér hins vegar að fjalla um það sem yrði raunverulegar rannsóknir, jafnvel tilraunaframleiðsla, á þessu sviði. Þá erum við komin lengra út á brautina.
Það var vikið að þeim tillögum sem ræddar voru hér á hv. Alþingi fyrir nokkrum dögum um nám á háskólastigi á vegum Háskóla Íslands á Akureyri og einnig var hér minnt á verkmenntaskólann á Akureyri. Ég held að þetta allt saman, háskólanám, verkmenntaskóli, starfsemi tengd rannsóknum og menningu og listum, styðji hvert annað og það hljóti að bera að skoða möguleika Akureyrar sem slíkrar út frá þessu öllu. Sé það rétt að hæstv. ríkisstj. hyggist verja miklum upphæðum til nýsköpunar í atvinnulífi og þ. á m. óhjákvæmilega til undirbúningsrannsókna og ýmiss konar rannsóknarstarfsemi, þá gefst hér e.t.v. lag til að hrinda úr vör með myndarlegri hætti en maður hefði þorað að vona ella. Ég skora þá á hæstv. ríkisstj. að taka þetta mál, sem og auðvitað fjöldamörg önnur sem þar hljóta að koma til skoðunar, með þegar eða ef þessu myndarlega átaki hæstv. ríkisstj. verður hrint úr vör á næstu mánuðum.
Herra forseti. Ég held ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um þetta. Ég þakka þær umr. sem hér hafa orðið um þetta mál.