20.11.1984
Efri deild: 16. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (797)
143. mál, álbræðsla við Straumsvík
Frsm. 2. minni hl. (Stefán Benediktsson):
Herra forseti. Ég get ekki til að byrja með tekið alveg heils hugar undir þau orð hv. síðasta ræðumanns, 6. landsk. þm., að Alþfl. sé algerlega stikkfrí í þessu máli því að upphafsvandinn í þessum samningaviðræðum öllum og hefur verið frá upphafi liggur falinn í upphaflegri gerð samningsins, þ.e. þeim grunni samningsins að einn aðili semur í raun og veru fyrir tvo, þannig að alltaf blandast saman hagsmunir tveggja óskyldra aðila, annars vegar raforkusalans, sem er Landsvirkjun, og hins vegar ríkissjóðs, sem á að hirða opinber gjöld af þessu fyrirtæki. Þegar menn gengu til samninga núna enn eina ferðina hlaut náttúrlega alltaf um ákveðin hrossakaup að vera að ræða þar sem verslað yrði með hagsmuni þessara tveggja óskyldu aðila. Auðvitað bar að leggja höfuðáherslu á það að sá aðilinn sem lagt hefur út féð, fjárfestingarnar og kostnaðinn vegna tilkomu þessa fyrirtækis fengi sem mest út úr þessum samningum. Ekki það að ríkissjóður eigi ekki allt gott skilið. En endanlega réttlætast hans tekjur ekki með útlögðum kostnaði, heldur er þar um aðgerðir að ræða, þar sem horft er til þess að eitthvað jafnt gangi yfir alla sem í þessu tilfelli á heldur ekki við þar sem um sérstakan aðila er að ræða eins og ÍSAL.
Ég stóð ekki að meirihlutaáliti þar sem mælt er með samþykkt þessa samnings. Þar komu aðallega tvær ástæður til. Annars vegar það að ég var ekki á landinu þegar frá þessu áliti var gengið. Hins vegar það að ég get ekki tekið þátt í því að hrópa húrra fyrir þessum samningi. Þessi samningur er að mínu mati ákveðinn áfangi, en hann er ekkert afrek.
Ég ætla ekki að tíunda sérstaklega efni eða innihald míns nál., en ég vil þó taka örfá atriði fram sem lúta að því að ég tel mjög nauðsynlegt að sú umr. sem fór af stað í kringum þennan samning lognist ekki út af og að menn tali hreint úr pokahorninu um þau vandamál, sem þarna er við að etja, sérstaklega í þeim tilgangi að reyna að læra af þeim í framtíðinni.
Það eru auðvitað uppi skiptar skoðanir hér á landi um hvaða leið beri að fara í sambandi við orkufrekan iðnað eða stóriðju. En eitt er víst. Með vaxandi þátttöku Íslands í alþjóðlegri starfsemi hlýtur einhvern tíma að reka að því að við tökum þátt í fyrirtæki svipuðu og þessu hér á landi. Og þá er ákaflega mikilvægt að menn haldi rétt á spöðunum og mjög mikilvægt að menn geri sér grein fyrir þeim mistökum sem hafa átt sér stað í fortíðinni og þeim göllum sem finna má á þessum samningi, en þeir eru auðvitað fyrir hendi. Það er mjög mikilvægt að menn safnist ekki í hópa og hrópi annaðhvort hallelúja eða fordæmi þennan samning, heldur horfist í augu við þau vandamál sem þegar eru fyrir hendi í honum og við er að glíma í framtíðinni.
Til að byrja með er eitt atriði mjög mikill ljóður á þessum samningi, það sem ég minntist á í upphafi og verður ekkert við gert, því að það er hluti af gamla aðalsamningnum og því verður trúlega seint breytt. En þetta atriði ber að mínu mati að hafa mjög sterklega í huga í framtíðinni, sem sé það að þetta er einn samningur við tvo aðila, en ætti að vera tveir samningar, við sinn aðilann hvor þeirra, annars vegar við ríkissjóð og hins vegar við Landsvirkjun. Ég nefni bara sem dæmi þá uppákomu sem járnblendiverksmiðjan er fyrir Landsvirkjun, þar sem Landsvirkjun undir hælnum á ríkisvaldinu er fyrirskipað að tapa á sínum viðskiptum. Þar eru allt aðrir og miklu, miklu alvarlegri hlutir á ferðinni heldur en nokkurn tíma í Straumsvík. Þar er fyrirtækið gagngert að tapa og landsmenn allir verða að borga brúsann.
Annað atriði er öllu erfiðara, það sem tengir annars vegar lánstíma og hins vegar afskriftir. Lánstími á almenna lánamarkaðinum í heiminum er um þessar mundir nokkuð stuttur. Þó er hann að lengjast. Hann er að verða hagstæðari. Menn töldu áður fyrr að 25 ára lánstími væri mjög eðlilegur fyrir virkjanir af því tagi sem þarna er um að ræða. En lán sem aflað hefur verið nýlega til sambærilegra framkvæmda, eins og í Hrauneyjafoss og Sigöldu, hafa verið 10 ára lán. Í raun og veru er það með öllu óviðunandi að fara út í virkjanir á lánagrundvelli sem þessum, að taka 10 ára lán til að fjármagna framleiðslu sem getur enst a.m.k. 100 ár. Það er náttúrlega út í hött, enda hefur komið glögglega fram hvað þetta hefur haft mikil áhrif á kostnað framleiðslunnar.
Afskriftatími þessara virkjana er líka rangur í ljósi staðreynda. Afskriftatíminn er 40 ár á virkjunum sem hæglega geta enst 100–150 ár. Að sjálfsögðu drægi stórlega úr framleiðslukostnaði ef afskriftatímanum væri breytt. Þetta er eitt þeirra atriða sem ég tel að menn verði að skoða í ljósi þess að ef endurskoðunarákvæði samningsins, sem núna er verið að fjalla um, duga ekki til að halda í við raunvirði þeirrar orku sem samið hefur verið um, þá verði að horfa til einhverra slíkra hluta til að halda kostnaði framleiðslunnar niðri, þ.e. að Íslendingar eða réttara sagt Landsvirkjun geti haft einhvern ábata af þessum samningi.
Það er öllum ljóst að Alusuisse er mjög erfiður samningsaðili. Það er líka ljóst að enn þá eru fyrirsjáanleg vandamál í sambúð Íslendinga og Alusuisse. Þessi samningur hefur ákveðna galla. Gallarnir eru margupptaldir. Einn þeirra eru endurskoðunarákvæðin sem eru loðin og þýða í raun að það verður harður bardagi á fimm ára fresti um hvað telja megi harðræði og hvað sé ófyrirsjáanlegt. Eins og hér hefur verið minnst á veit hvert einasta mannsbarn það orðið að það verður 5% verðbólga á ári fram til aldamóta og jafnvel lengur og ekki hægt að kalla slíkt ófyrirsjáanlegar aðstæður. Menn verða þess vegna að hengja hatt sinn á eitthvað annað þegar þeir ætla að knýja fram hærra orkuverð.
Annað atriði er stækkunin. Mér er ekki alveg ljóst, jafnvel eftir að hafa bæði lesið frv. og tekið þátt í nefndastörfum, hvort það er í raun og veru ásetningur ríkisstj. að fara með þau mál sem varða stækkun verksmiðjunnar, kjör og skilmála um raforkusölu í gegn algerlega án þinglegrar meðferðar. Þetta atriði varðar svo mikið þjóðhagslegar stærðir að ég tel óhugsandi að leiða þar eitt eða neitt til lykta án þess að þar sé unnin mjög rækileg og nákvæm vinna hvað þjóðhagslega hagkvæmni snertir og án þess að málið fái rækilega umfjöllun hér í þingsölum. Ég tel að árangur þessa samnings sé raforkuverðið með þeirri, hvað eigum við að segja — áhættu sem falin er í endurskoðunarákvæðunum. Ég tel að þarna hafi að því leyti verið skynsamlega á málum haldið að sá aðilinn sem þurfti á ábata að halda í þessum samningaviðræðum fékk þó góða lausn sinna mála miðað við ástand dagsins í dag.
Í sambandi við þann vanda sem Íslendingar hafa átt við að glíma og glíma við enn þann dag í dag í raforkuverðsmálum langar mig til að benda hér á einn hlut sem ég tel að skipti mjög miklu máli og við hjá Bandalagi jafnaðarmanna höfum lagt þó nokkra vinnu í að skoða og munum flytja hér á næstunni sem þingmál.
Ef maður rifjar upp söguna þá er það árið 1953 sem efnahagsmálanefnd Sameinuðu þjóðanna í Evrópu gerir ákveðna bókun sem er kölluð bókun 188. Þessi bókun lýtur að verðbótum í samningum aðila við byggingu á framleiðslutækjum eða sölu á vélum. Í grófum og einföldum dráttum felur þessi bókun það í sér að hækkun verðbóta í slíkum viðskiptum skuli aldrei vera meiri en meðalhækkunin á viðmiðunartímanum.
Hér á Íslandi er yfirleitt, með örfáum undantekningum þó, verðbætt með þeim hætti að öll gengisbreytingin á viðmiðunartímanum er tekin sem verðbót inn í uppgjör. Þetta þýðir það að ef við setjum upp karamelluverksmiðju á Íslandi og karamelluverksmiðju í Danmörku verður tilkostnaðurinn við byggingu þessara verksmiðja ekki sambærilegur að því leyti að fjármagnsþörfin við byggingu þeirrar íslensku er því meiri sem þessum verðbótaaðferðum nemur. Það þýðir að karamellurnar sem við framleiðum á Íslandi hljóta alltaf að verða dýrari en þær sem framleiddar eru í Danmörku. Þetta á náttúrlega við um miklu fleiri þætti. Þetta á líka við um raforku. Þetta kann að vera ein af veigameiri skýringum á því að við Íslendingar erum ekki samkeppnisfærari en við erum í sölu raforku í dag. Þessi atriði varða ekki hvað síst byggingu þeirra raforkuvera sem byggð hafa verið á verðbólguáratugunum, þ.e. Sigöldu og Hrauneyjafoss. Ég tek ekki Kröflu með í þetta dæmi vegna þess að þar er náttúrlega allt annað á ferðinni og enn þá verra en bara verðbólguástandið.
Herra forseti. Eins og ég sagði í upphafi ætla ég ekki að lesa nál. mitt. Menn geta haft fyrir því sjálfir. Ég legg til að þetta frv. verði samþykkt. Ég tel að með því gætum við staðið að ákveðnum kaflaskiptum í málefnum raforkusölu og orkufreks iðnaðar á Íslandi og hugsanlega skapað grundvöll til samstöðu meðal allra pólitískra afla í framtíðinni þegar við sams konar vandamál er að glíma. — [Fundarhlé.]