15.10.1984
Neðri deild: 3. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (82)

Umræður utan dagskrár

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Hér hafa verið hafðar umræður utan dagskrár og spurningu beint til menntmrh. þar sem leitað var eftir því hver væri afstaða hæstv. menntmrh. til ummæla hæstv. fjmrh. þar sem hann talaði um kennsluskyldu kennara og vinnutíma þeirra. Ég vil byrja á því að geta þess að efnislega ræddi ég þetta mál nokkuð ítarlega í umr. þegar hæstv. fjmrh. hafði látið hin misheppnuðu orð falla. En það er aðeins einn fjölmiðill sem lætur fara frá sér fréttir þessa dagana og ég verð að taka undir það með hæstv. menntmrh. að mér fannst túlkun þess fjölmiðils á því, sem væri að gerast hér í þinginu, ærið einhliða. Það var vissulega nauðsyn að fram kæmi hver væri skoðun hæstv. menntmrh. Hún kom fram í umr. á sínum tíma þar sem hæstv. menntmrh. gat þess að hann teldi að leiðrétta þyrfti kjör kennara. Ég hygg að það hafi aldrei verið meiri nauðsyn en nú fyrir Ríkisútvarpið og aðstandendur þess og velunnara að gera sér grein fyrir því að hlutlaus fréttaflutningur þess er mjög í brennidepli og við sem erum velunnarar þess eigum erfitt með að þola að fréttaflutningur frá því verði til þess að skekkja mjög þá mynd sem menn hafa af þeim umr. sem hér eiga sér stað.

Í þeirri efnislegu ræðu, sem ég flutti á sínum tíma, gat ég um það hve fráleitt er að rugla saman kennsluskyldu og vinnuskyldu kennara. Ég ætla ekki að endurtaka þá ræðu hér, en get aftur á móti ekki látið hjá líða að víkja örlítið að ummælum hæstv. fjmrh. þar sem hann telur að kanna þurfi hvort kennsluskylda kennara hafi verið minnkuð til að koma kennurum í vinnu. Enn kemur það fram að hæstv. fjmrh. virðist hafa í sínu nágrenni menn sem vitandi vits ætlast til þess að hann hlaupi á sig og komi vitleysum inn á Alþingi. Ég held það væri tímabært. að hann færi að setja þá í fylkingarbrjóstið þannig að menn vissu við hverja þeir væru að tala. Það vill svo til að það hefur aldrei tekist á Íslandi að manna allar kennarastöður grunnskóla eða barnaskólanna með kennurum með réttindi. Það hefur aldrei tekist. Þess vegna er ekki um það að ræða að þarna sé atvinnuleysi hjá þeim sem hafa viljað helga sig þessum störfum. Þetta hlýtur hæstv. fjmrh. að geta fengið óyggjandi upplýsingar um hjá hæstv. menntmrh.

Ég get vissulega tekið undir það, sem hæstv. fjmrh. sagði, að þjóðfélagið hefði takmarkað þensluþol. Það er vissulega rétt. En ég hygg að hver og einn, sem horfir til framtíðar, geri sér grein fyrir því að ef við vegum að menntuninni í landinu og þá grunnmenntuninni erum við að vega að framtíð þjóðarinnar. Þá erum við að vega að okkar eigin örlögum þegar aldur færist yfir. Og e.t.v. er þetta spurningin m.a. um það hvaða ellistyrk við hljótum þegar þar að kemur.

Mér finnst að þessi umr. hafi um margt farið úr böndunum. E.t.v. er hennar þörf að einu leyti. E.t.v. er það tilfellið að nokkuð stór hópur í þjóðfélaginu hugsi eins og þeir fjármálamenn sem þarna hafa viljað koma skoðunum sínum á framfæri. E.t.v. var það nauðsyn að einhvers staðar kæmi þetta fram í dagsljósið þannig að hægt væri að ræða hlutina en menn sætu ekki uppi með þetta sem hernaðarleyndarmál sem farið væri eftir á bak við tjöldin en enginn þyrði að ræða.

Það er hætt við að fljótlega færi illa fyrir þeim kennara sem teldi að sín vinnuskylda væri aðeins að mæta í tímann og mundi aldrei undirbúa sig undir eitt eða neitt. Það fer illa fyrir ráðh. ef þeir flytja mál sitt hér án þess að hafa undirbúið sig undir það. Og ég hygg að það sé ærin nauðsyn að ekki dyljist fyrir neinum að í hinni hröðu þróun í voru þjóðfélagi er endurmenntunarþörfin gífurleg og e.t.v. er hún á fáum stöðum meiri en hjá kennurunum. Ætli nokkur okkar vildi að þau börn sem við erum að senda í skólann sætu uppi með það að kennarinn væri kominn upp undir sjötugt og hefði aldrei kynnt sér aðrar bækur né námsefni eða viðhorf en það sem var á dagskrá þegar hann var í Kennaraskóla Íslands? Ég býst við því að við teldum það ekki verjandi ástand. En sem betur fer eiga Íslendingar góða kennarastétt. Við höfum hins vegar greitt henni lág laun.

En ég vænti þess að fjölmiðlar þjóðarinnar geri sér grein fyrir því og geri grein fyrir því að kennarastéttin á verjendur marga hér á þingi sem meta störf hennar og meta þau störf eftir öðrum mælikvarða en þeim hvar mönnum er raðað í launastiga.